• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 7. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stafrænn samningur um breytt lögheimili barns og meðlag

Nú geta foreldrar gengið frá lögheimilisskráningu barnsins án þess að þurfa að mæta á skrifstofu sýslumanns

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. september 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Foreldrar geta nú gert með sér stafrænan samning um breytt lögheimili barns og um leið breytta tilhögun meðlags. Öll afgreiðsla málsins er stafræn og foreldrarnir undirrita samninginn um breytta högun með rafrænni undirritun, hvort fyrir sig.

Foreldrar sem eru sammála um lögheimilisflutning barns geta nýtt sér þessa stórbættu þjónustu sýslumanna sem er aðgengileg á Ísland.is. Ferlið er stafrænt frá upphafi til enda og berst staðfesting sýslumanns foreldrum í pósthólf þeirra á Ísland.is að málsmeðferð lokinni. Þannig geta foreldrar gengið frá lögheimilisskráningu barnsins án þess að þurfa að mæta á skrifstofu sýslumanns eða afla gagna fá öðrum stofnunum.

„Þetta verkefni er stór áfangi í stafrænni málsmeðferð á vegum hins opinbera og sýnir að við getum bætt okkar þjónustu til muna. Vonandi getum við heimfært þetta á sem mest af þeirri þjónustu sem almenningur sækir til hins opinbera. Stafræn viðmót sem þessi draga úr þörf á heimsóknum til stofnana ríkisins, stytta afgreiðslutíma, minnka umferð og draga úr kostnaði“, segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir dóms­málaráðherra

„Þetta eru mikil tímamót því sýslumenn hafa hingað til ekki getað boðið fólki að gera samning sín á milli sem berst sýslumanni stafrænt til staðfestingar. Þetta ferli verður grunnur að frekari þróun stafrænna samninga t.d. um forsjá, meðlag, menntunarframlag og fleira“, segir Kristín Þórðardóttir, formaður Sýslumannaráðs.

„Stafrænt Ísland hefur unnið gríðarlega undirbúnings- og rannsóknarvinnu vegna þessa verkefnis og við höfum átt mjög gott samstarf við sýslumenn. Við bindum vonir við að þetta sé einungis fyrsta verkefnið af mörgum af þessu tagi, þar sem okkur tekst að einfalda líf fólks með stafrænu ferli“, segir Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.

Umsókn fyrir foreldra með sameiginlega forsjá um breytt lögheimili barns og meðlag má finna á Ísland.is.
https://island.is/breytt-loegheimili-barns

Þjónusta sýslumanna hefur tekið stakkaskiptum síðasta árið hvað varðar stafrænt viðmót fyrir viðskiptavini. Nú er í boði fjöldi stafrænna umsókna og auknir möguleikar á stafrænni málsmeðferð og stafrænar sendingar og móttaka gagna sem áður þurfti að koma með í pappírsformi á sýsluskrifstofu eða senda í pósti.
Stafræn þjónusta ríkisins er ávallt aðgengileg hjá Stafrænu Íslandi á Ísland.is

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Veiddi slasaðan þorsk – ,,hefur allavega ekki lent á bíl“

    Veiddi slasaðan þorsk – ,,hefur allavega ekki lent á bíl“

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    96 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fiskifræðingur segir kvótakerfið algerlega brugðist og lagt landsbyggðina í rúst

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Fyrirtæki og þjónusta horfin eftir 40 ára kvótakerfi

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?