• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 10. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Frumvarp Katrínar um að gefa firði Íslands – Nýtt gjafakvótakerfi

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar

Ratið út villusauðir!

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. september 2024
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Nú er horfið Norðurland

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar

Það á að breyta Siglufirði, Ólafsfirði, Héðinsfirði og Eyjafirði í eldisstöð fyrir 20 þúsund tonn af laxi. Þar á að framleiða næstum eitt prósent af öllum laxi sem er étinn í heiminum. Fylla Siglufjörð, Ólafsfjörð, Héðinsfjörð og Eyjaförð af úrgangi úr hundraðasta hverjum laxi sem fæðist á jörðinni. Hundrað og þrítugasta hverjum, ef við viljum vera nákvæm. Norðlendingar eignast 0,7% af öllum laxaskít á jörðinni.

Í staðinn er íbúum á svæðinu lofað 10,1% af öllum arðgreiðslum af laxeldinu í sameiginlega sjóði til að mennta börnin, hýsa gamalmennin, reka menningarmiðstöðvar, stofur og setur. Ef allt gengur að óskum þýðir þetta að 30.000 íbúar fá um 200 milljónir á ári í sinn hlut á hverju ári upp úr 2030. Það eru 6500 krónur á mann. Einn bröns á Cafe Berlín á Akureyri, þrjú korter hjá grunnskólakennara eða ein bleik Smiley World Cheerful Moments skólataska fyrir leikskólabarn. 6500 krónur á mann.
Í þessu ljósi orti ég tækifærisgaldra til hversdagsbrúks fyrir landa mína.
Best er að mæla þá af munni fram með hægð að morgni dags. ❤️
Hættið, hlustið,
helgar meyjar,
hetjur allar,
vættir, vinir,
um veröld alla.
Heyrast látið hávær köll
svo hlíðar muni skjálfa,
heitið svo á hellatröll
að hirta þessa bjálfa.
Nú kalla ég á lóminn!
Litlu kærleiksblómin!
Bölvaður heimsósóminn!
Tófur allar takið þá
bítið þá og bergið á.
Hjarnið kalt,
veðrið svalt
ullarlagður vakir á vír.
vís er dauðinn dýr,
vís er dauðinn dýr.
Enginn það tekur
sem lífið vekur,
nema fíflið og fáninn,
kjáninn og bjáninn.
Með borða um hjartað bittu það!
blíðan mín góð.
Fóstraðir fiskar
falskir um fljúga
firðirnir fúlna
farið þá allt.
Ættkvíslir skarast
fyrnast, farast
allt er í heimi hallt
horfið allt.
Ræflarnir rupla,
gírugir greiða,
sveitunga svíkja,
undirmenn strýkja,
berjast munu bræður
bóndinn engu ræður
Megi þeir víkja
Megi þeir víkja
Engir munu elska þá sem Íslandsbörnin svíkja
Sjúkir vilja selja roðið
svöngum er til veislu boðið
helsjúkt, marið, svellt og pínt
fyrir glópagullið fínt
Megi þeir víkja
Megi þeir víkja
Engir munu elska þá sem Íslandsbörnin svíkja
Birtist ekki landið
Í blóðinu þínu?
Sérðu ekki sálina
í sandkorni fínu?
Hvernig lækurinn rennur,
árnar sig belgja,
vormóinn syngur,
foldarskart brennur.
Aldan rís
aldan hnígur
sólin rís
sólin sígur.
Hvert dagmál er bæn!
um líf, um líf!
Norðurlandið napurt
nakta Vanadís!
Mikið er það dapurt
meðtak ei þennan prís!
Barið er þitt blíða
bros og gullið tár
gylliboðin bíða
blóðs í þúsund ár!
Lifandi eða dauðir!
Ratið út villusauðir!
Umræða
Share28Tweet18
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Banaslys á Miklubraut í Reykjavík

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Undirbúa mótmæli gegn stjórnarandstöðunni

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Umferðarslys á Miklubraut – vitni óskast

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Þúsundum tonna af fiskveiðiauðlind þjóðarinnar sóað

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málþófið kostar 345 milljónir króna – ,,Í dag er sorgardagur fyrir lýðræðið“

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?