Hér eru helstu atriði úr dagbók LRH frá kl.17-05. Þegar þetta er ritað eru 2 vistaðir í fangageymslu lögreglu. Alls eru 66 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Ásamt neðangreindu sinnti lögregla almennu eftirliti og ýmsum aðstoðarbeiðnum. Listinn er því ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1
- Lögregla boðuð á hótel til að vísa óvelkomnum gesti þaðan burt.
- Öðrum óvelkomnum aðila vísað út af mathöll. Sá gekk sína leið.
- Ökumaður bifreiðar stöðvaður við almennt umferðareftirlit. Í viðræðum við ökumann grunuðu lögreglumenn að sá væri undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem síðar reyndist vera. Ökumaðurinn var einnig að aka án gildra ökuréttinda. Laus að lokinni sýnatöku.
- Annar ökumaður stöðvaður grunaður um að aka ökutæki sínu undir áhrifum ávana- og/eða fíkniefna. Laus að lokinni sýnatöku.
- Lögreglumenn sem voru að sinna almennu umferðaeftirliti veittu torfærutæki (buggy-bifreið) án skráningarnúmera athygli. Lögreglumennirnir ákváðu að gefa sig á tal við ökumann vegna ýmsa brota varðandi gerð og búnað tækisins þegar ökumaðurinn ákvað að reyna að komast undan akandi. Við tilraun ökumannsins að stinga lögreglu af ók hann ítrekað gengt rauðu ljósi og virti ökumaðurinn ekki hámarkshraða þeirra gatna sem hann ók. Að lokum hafði hann ekki erinda sem erfiði og var stöðvaður og handtekinn, grunaður um fjölda umferðalagabrota sem og að stofna lífi og/eða heilsu annarra í augljósan háska.
- Tilkynnt um aðila vera að brjótast inn í bifreið. Var því veitt sérstök athygli að sá hafði virst alveg rólegur við þessa iðju. Í ljós kom að sá tilkynnti virtist vera umráðamaður bifreiðarinnar og voru kveikjuláslyklarnir eitthvað farnir að klikka og því hafi hann þurft að opna bifreiðina með öðrum ráðum.
- Tilkynnt um yfirstandandi innbrot í gám. Tveir aðilar reyndu að komast undan lögreglu en rétt eins og ökumaðurinn á torfærutækinu tókst þeim það ekki og voru handteknir. Lausir að lokinni framburðarskýrslu. Málið í rannsókn.
Lögreglustöð 2
- Ökumaður bifreiðar stöðvaður við almennt umferðareftirlit. Ökumaður reyndist vera undir áhrifum áfengis en þó undir refsimörkum. Gert að stöðva akstur.
- Við almennt eftirlit lögreglu veittu lögreglumenn því athygli að við verslun eina væri aðili með hníf í hendi. Sá handtekinn grunaður um brot á vopnalögum. Laus að lokinni framburðarskýrslu.
Lögreglustöð 3
- Lögregla boðuð á vettvang þar sem tilkynnandi kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás af hendi nágranna síns. Málið í rannsókn.
- Tilkynnt um aðila með hníf á lofti og öskrandi við verslunarmiðstöð. Sá hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu en var á endanum handtekinn. Aðilinn vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins en hann er grunaður um brot á vopnalögum.
- Tilkynnt um umferðarslys. Lítið tjón á bifreiðum og ekki slys á fólki.
- Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar í bifreið. Minniháttar áverkar á brotaþola og málið í rannsókn.
- Leigubílstjóri óskað aðstoðar lögreglu en hann kvaðst vera í vandræðum með farþega.
Lögreglustöð 4
- Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar. Minniháttar áverkar á brotaþola og málið í rannsókn.
Umræða

