Torfan veitingahús er bæði virðulegt hús að utan sem innan og andinn í því er sérstaklega góður og notalegur. Vel fer um gesti og nóg pláss í veitingasalnum til að láta fara vel um sig. Falleg húsgögn og hönnun að innan gera stemminguna algjörlega frábæra og ógleymanlega.
Þjónustan og maturinn er frábær og gott úrval af forréttum, aðalréttum og eftirréttum á matseðli sem og gott úrval á vínseðlinum.
Það er einstaklega kósý að njóta þess sem boðið er upp á í svona notalegu umhverfi sem veitingahúsið býður upp á, sem fær fimm stjörnur af fimm mögulegum þegar allt er metið.
Torfan veitingahús heimsótt
Starfsmenn Fréttatímans heimsóttu Veitingahúsið Torfuna á dögunum og upplifunin var frábær vegna þess að staðurinn stóðst allar væntingar og rúmlega það.
Þjónustan var mjög persónuleg og þægileg og rætt við okkur um matseðilinn og hvaðan hráefnið væri. Það var athyglivert að heyra að hreindýrakjötið er sérstaklega handerað fyrir veitingahúsið af samstarfsaðila í Lapplandi nánar tiltekið í norður Svíþjóð. Kokkurinn kom svo til okkar og lýsti meðferð kjötsins og matreiðslu þess sem og ræddum við um aðra rétti á matseðlinum.
Hreindýrakjötið var frábært sem og aðrir aðalréttir sem við prufuðum og eftirréttir. Var það samhljóma skoðun okkar að það verða allir ánægðir sem panta borð á Torfan veitingahús vegna þess að það bara smellur allt saman sem veitingahús í hæsta gæðaflokki getur boðið upp á.
Kokkarnir hafa mikla reynslu af því að starfa á einöngruðum stöðum. Þar hafa þeir starfað með heimafólki við að búa til frábæran mat sem byggir á staðbundinni matargerð.
Kokkarnir hafa til að mynda unnið og numið á Grænlandi, Svalbarða sem og í Lapplandi ásamt afskekktustu svæðum Íslands og aflað sér þekkingar frá staðbundnum leiðbeinendum.
Með þá reynslu færa þeir gestum bestu mögulegu rétti hverju sinni.
Sögufrægt hús

,,Þegar þetta sögufræga hús að Amtmannsstíg 1 í Reykjavík var laust til afnota fyrir starfsemi ákváðum við að láta alla okkar villtustu drauma rætast og opna veitingastað.
Hráefnið okkar er það ferskasta hverju sinni og því breytist matseðillinn að einhverju leyti eftir árstíðum.
Í tímaritinu Scan, þar sem fjallað var um nýjustu fréttir af skandinavískum ferðalögum, hönnun, viðskiptum og menningu, skrifuðu þeir um okkur:
„Með áherslu á ekta norræna matargerð leggur teymið af hæfum matreiðslumönnum metnað sinn í að útvega fyrsta flokks hráefni frá traustum framleiðendum á staðnum, með árstíðabundnum matseðli sem breytist eftir því hvað er ferskt og í boði.
Hugsið ykkur hefðbundna íslenska matargerð en uppfærða og með lúxusívafi.“
Lesið meira hér: Grein í tímaritinu Scan
Fréttatíminn mælir sérstaklega með að fólk prufi að panta borð á Torfan veitingahús og upplifi þar góðar stundir, því veitingahúsið býður upp á allt til þess að upplifunin verði frábær!
Við látum fylgja með hér að neðan sýnishorn af myndum sem teknar hafa verið á Torfan veitingahús:


