Ferðamenn á Tenerife hafa verið varaðir við þar sem yfirvöld ætlar að virkja stærstu eldfjallaviðvörun allra tíma
Æfingin mun virkja 1.000 manns, þar á meðal tæknimenn og sérfræðinga frá ríkisstjórninni, meðlimi neyðardeildar hersins og vísindastofnana. Fjallað var ítarlega um málið á breska miðlinum Express.co.uk
Ferðamenn sem heimsækja Tenerife hafa verið varaðir við „hugsanlega ógnvekjandi“ eldfjallaviðvörun þar sem virkjað verður stærsta viðvörunarkerfi til þessa. Á spænsku eyjunni eru ýmis eldfjöll og frægast þeirra er Teidefjall, þar sem röð jarðarskjálfta hafa verið undanfarnar vikur.
Sérfræðingar sögðu að allir á Tenerife væru að fara að fá viðvörun um „gos“ sem þeir þyrftu að vera meðvitaðir um. Margir verða beðnir um að yfirgefa heimili sín sem er hluti af stærstu neyðaræfingu vegna eldgosa. Meint neyðarástand verður staðsett í bænum Garachico í norðri og allir íbúar Tenerife munu fá símaviðvörun þann 26. september.

