• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 10. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sex útköll þyrlusveitarinnar um helgina

Sex útköll þyrlusveitarinnar um helgina

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. nóvember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Helgin hefur verið annasöm hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sem hefur sinnt sex útköllum um helgina, þar af voru tvö þeirra sjúkraflutningar á sjó.

Um hádegisbil í dag var þyrlusveitin kölluð út vegna skipverja á túnfiskskipi sem hafði slasast um borð fyrir nokkrum dögum. Ástand hans hafði farið versnandi og skipstjóri skipsins hafði því samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sem í samráði við lækni ákvað að kalla þyrlusveitina út til að sækja manninn og koma honum undir læknishendur. Skipið var um 170 sjómílur vestur af Reykjanesi þegar útkallið barst og vegna fjarlægðar frá landi var nauðsynlegt að kalla út tvær þyrlur til að annast útkallið. Áhafnirnar á TF-EIR og TF-GNA flugu vestur að skipinu og kom það í hlut áhafnarinnar á TF-GNA að sækja manninn en áhöfnin TF-EIR var til taks á svæðinu, flaug hærra eða í um 7000 fetum til þess að auðvelda fjarskipti og samskipti við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Reykjavík.

Vel gekk að koma manninum um borð í þyrluna og var flogið með hann á Landspítalann í Fossvogi. Þegar fara þarf í jafn langt flug út á sjó krefst slíkt mikils skipulags og í meðfylgjandi myndbandi má fá innsýn í þetta krefjandi verkefni þyrlusveitarinnar frá því í dag.

Í gærdag var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir kallaðar út vegna veikinda göngumanns á Hrómundartindi á Kattartjarnaleið. Göngumaðurinn var fluttur á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Í gærkvöld sinnti þyrlusveitin þremur verkefnum. Um kvöldmatarleytið þegar þyrlusveitin var á æfingu tilkynni flugmaður eins hreyfils flugvélar sem var á leið til Keflavíkur að truflanir væru í mótor vélarinnar. Þyrlusveitin flaug til móts við vélina og fylgdi henni til lendingar á Keflavíkurflugvelli þar sem hún lenti án vandræða. Seinna sama kvöld var óskað eftir aðkomu þyrlusveitarinnar vegna veikinda um borð í íslensku fiskiskipi sem var statt um 60 sjómílur suður af Grindavík. Aðstæður til hífinga voru krefjandi. Vindur var rúmlega 20 metrar á sekúndu og ölduhæð um 5 metrar. Vel gekk að koma manninum um borð í þyrluna og honum var komið undir læknishendur í Reykjavík. Þegar þyrlan lenti þar var hún strax kölluð út aftur til að annast sjúkraflug til Patreksfjarðar. Þangað var þyrlusveitin komin rétt fyrir miðnætti og flutti einn á Landspítalann í Fossvogi.

Eins og þessi samantekt sýnir var í nógu að snúast hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar um helgina.

Útkall í túnfiskskip

TF-GNA-tekur-a-loftTF-GNA tekur á loft frá Reykjavíkurflugvelli.

Sigmadurinn-kemur-i-thyrluna-afturFrá útkalli dagsins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Netsvindl, fjárkúgun og fleira

    Laus hundur veittist að barni

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • „Bankinn stjórnar lífi þínu“ – margir viðskiptavinir reiðir vegna eftirlits bankanna

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Ég á kvótann með þjóðinni – voru með útsýnisflug fyrir kvótaþega“

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón – FIMMTA SÆTI YFIR MEST LESIÐ 2025

    986 deilingar
    Share 394 Tweet 247
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?