• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 16. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Áætlunarflug hafið til Eyja

Kingair flugvél Mýflugs á Vestmannaeyjaflugvelli. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Áætlunarflug hafið til Eyja

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. desember 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Um mánaðarmótin hófst áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Vegagerðin, fyrir hönd ríkisins samdi við Mýflug um flugið til Vestmannaeyja. Eyjafréttir greindu fyrst frá.

Flogið er fjórum sinnum í viku frá 1. desember 2024 til og með 28. febrúar 2025. Samningurinn hefur þegar tekið gildi og hægt er að bóka flug á vef Mýflugs.

Flugleiðin er styrkt til að tryggja tímabundið lágmarksþjónustu á flugleiðinni á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda flugið mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðinu, segir í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar.

Nota Kingair flugvélar sem taka 7-9 farþega

Fram kemur í svari Vegagerðarinnar til Eyjafrétta/Eyjar.net að í útboði Vegagerðarinnar um flug til Vestmannaeyja á tímabilinu 01.12.2024 – 28.02.2025 hafi verið gerðar kröfur um búnað þeirra véla sem bjóðendur þurftu að uppfylla. Helstu kröfur í útboði voru þær að vélarnar þurfa að vera fjölhreyfla með hverfilhreyflum, vera búnar fullkomnum afísingarbúnaði, ísingarvarnarbúnaði og með heimild til flugs í ísingaraðstæðum eða þekktri ísingu. Einnig þurfa vélarnar að vera búnar tækjabúnaði og heimild fyrir Performance Based Navigation  (PBN). Ekki var gerð krafa um ákveðna stærð eða ákveðinn fjölda sæta.

Mýflug er að nota B200 Kingair flugvélar í verkefnið sem stendur en það er flugrekandans að ákveða hvaða vélartegund hann notar í verkefnið svo fremi sem þær uppfylla kröfur útboðsins. B200 Kingair flugvélar taka 7-9 farþega eftir útfærslu vélarinnar hverju sinni.  Arðhleðsla skal vera að lágmarki 1.500 kg.

Vegagerðin gerir kröfu um að flogið sé að lágmarki fjórar ferðir í viku fram og til baka.  Samningurinn miðar við að boðið verði upp á alls 52 hringferðir og 936 flugsæti á ári ( desember – febrúar ) eða 156 hringferðir og 2.808 flugsæti á samningstímanum sem er 3 ár.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Grillmarkaðurinn er fyrsta flokks veitingastaður – Frábærar veitinga og þjónusta

    Alvarleg líkamsárás – tveir í gæsluvarðhaldi

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • ,,Það er eitthvað brotið í íslenska menntakerfinu“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?