Tveimur erlendum ríkisborgurum, karli og konu, hefur verið vísað brott frá Íslandi samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar á grundvelli laga um útlendinga. Þeim var jafnframt bönnuð endurkoma til Íslands í fimm ár.
Fólkið, sem er á fertugs- og fimmtugsaldri, hafði dvalið á Íslandi um tveggja ára skeið og ítrekað komið við sögu lögreglu.
Það var sakfellt í héraðsdómi sl. haust og í byrjun þessa árs fyrir fjölda brota gegn almennum hegningarlögum.
Umræða

