Björgunarsveitir á Suðausturlandi voru kallaðar út á sjöunda tímanum í kvöld vegna leitar að konu í Skaftafelli
Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu segir að konan ferðist í litlum hóp um landið og hafi verið á göngu með samferðamönnum sínum í dag þegar hún varð viðskila við hópinn.
„Ekkert hefur spurst til hennar síðan um miðjan daginn. Fyrstu viðbragðsaðilar voru komnir í Skaftafell um klukkan 19 í kvöld og nú er nokkur fjöldi hópa að leita á svæðinu. Hvasst er í Skaftafelli og leynist hálka víða. Veðurstofan spáir versnandi veðri í nótt,“ segir í tilkynningunni.
Konan var á ferðalagi með fjölskyldu sinni um landið og var á göngu, þegar hún varð viðskila við fjölskylduna. Hvasst er í Skaftafelli og frost og spáð er versnandi veðri þar í nótt og í fyrramálið. Aukinn mannskapur hefur verið kallaður út.
Núna klukkan 21:50 hefur leitin engan árangur borið en búið er að miða út farsíma sem að konan er með sem að ætti að gera leitina auðveldari.