• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Fitch hækkar lánshæfiseinkunn Íslands í ‘A+’ með stöðugum horfum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. febrúar 2026
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Fitch Ratings hækkaði í dag lánshæfiseinkunn Íslands í ‘A+’ úr ‘A’ með stöðugum horfum. Fitch Ratings hefur að sama skapi afturkallað áframhaldandi mat á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs.

Hækkun lánshæfismatsins endurspeglar styrk opinberra fjármála og lækkandi skuldahlutfall sem byggir á sterkri pólitískri skuldbindingu um festu og aðhald í ríkisfjármálum og áform um að ljúka hallarekstri ríkissjóðs.

Sterkari staða ríkissjóðs og aukið svigrúm í ríkisfjármálum voru helstu drifkraftar ákvörðunar Fitch. Varfærin fjármálastefna hefur stuðlað að verulegri minnkun hallareksturs hins opinbera. Fitch gerir ráð fyrir að hallinn minnki enn frekar á árunum 2026–2027. Sú þróun er studd af þjóðhagslegu stöðugleikareglunni, samþykktum tekjuráðstöfunum og víðtækri pólitískri samstöðu um að ná fram hallalausum ríkisrekstri árið 2027.

Enn fremur gerir matsfyrirtækið ráð fyrir að skuldahlutfall hins opinbera lækki smám saman á árunum 2026–2027, í kjölfar verulegrar skuldalækkunar sem varð vegna uppgjörs skuldbindinga ÍL-sjóðs og sölu á eignarhlutum ríkissjóðs í Íslandsbanka.

Lánshæfiseinkunn Íslands og stöðugar horfur taka mið af stöndugu hagkerfi, sterkri stofnanaumgjörð og þróttmiklum einkageira. Á móti þessum styrkleikum vegur smæð hagkerfisins sem gerir það viðkvæmt fyrir áföllum í einstaka atvinnugreinum. Sterk ytri staða, viðnámsþróttur og skilvirk stefnumótun ýtir undir aukið efnahagslegt þol hagkerfisins.

Meðal annarra þátta sem styðja við lánshæfiseinkunn Íslands samkvæmt Fitch eru traustur fjármálageiri og há einkunn á mælikvarða WBGI sem endurspeglar langa hefð stöðugra og friðsamlegra pólitískra umbreytinga, traust lýðræði, sterka stofnanaumgjörð, skilvirkt réttarríki og litla spillingu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?