• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Frekir, tengdir og ríkir fram fyrir röð

55% fólks á aldrinum 25-49 ára verða leiguliðar þeirra sem eldri eru

Meiri­hluti fólks á barn­eignar­aldri verði brátt „leigu­liðar þeirra sem eldri eru“

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. mars 2025
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Á undanförnum tveimur áratugum hefur hlutfall íbúða í eigu fólks á barneignaraldri lækkað talsvert á sama tíma og það fjölgar verulega í hópi þeirra sem eru fimmtíu ára og eldri sem fjárfesta í íbúðum til viðbótar þeirri sem þeir búa í, að sögn Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóra Aflvaka þróunarfélags. 

Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka, skrifar

Þrátt fyrir hátt hlutfall íbúða sé skráð í eigu einstaklinga – það er núna 81 prósent borið saman við 89 prósent árið 2005 – þá segir það ekki alla söguna um hversu margir eigi sitt eigið húsnæði vegna þess að sumir einstaklingar geta átt fleiri en eina eign.

Árið 2005 áttu 74% Íslendinga sem voru eldri en 25 ára eigin íbúð en árið 2024 hafði hlutfall þeirra lækkað niður í 67%. Ljóst er hvert stefnir. Þeim fækkar hlutfallslega sem eiga þak yfir höfuðið.

Fólki fækkar mjög hratt í hópi þeirra sem eru á barneignaraldri, eða 25-49 ára, og eiga íbúð, á meðan hlutfallið hækkar í hópi þeirra sem eru eldri en 50 ára og eiga íbúð.

Á árinu 2005 áttu 69% allra þeirra sem þá voru á aldrinum 25-49 ára eigið húsnæði en á næstu tuttugu árum fækkaði þeim um 14%, í aðeins 55%. Á sama tíma fjölgaði þeim um 3% sem eiga íbúð og eru fimmtugir og eldri, eða úr 74% í 77%.

Þegar heildarfjöldi íbúða sem einstaklingar eiga og búa í er greindur nánar kemur í ljós að 38 prósent nýrra íbúða sem bættust á markað á síðustu tuttugu árum hafi verið keyptar af fólki sem býr í þeim. Þarna sé samtals um að ræða 16 þúsund íbúðir og eru aðeins eitt þúsund þeirra í eigu fólks á aldrinum 25-49 ára á meðan íbúðum fækkaði um eitt þúsund hjá fólki undir 25 ára – og því er öll aukninginn hjá 50 ára og eldri.

Þeim sem eru yngri og eiga fleiri en eina íbúð hefur fækkað á meðan þeim fjölgar um nærri 130% sem eru eldri en 50 ára og fjárfesta í íbúð til viðbótar við þá sem þeir búa í á tímabilinu 2005 til 2024. Það er sláandi í ljósi þess að það fjölgaði í aldurshópnum 25-49 ára á tímabilinu um 34 þúsund manns.

Af þeim 38 þúsund viðbótaríbúðum sem komið hafa á markað frá árinu 2005 og eru í eigu 50 ára og eldri er um 60% af þeim íbúðum, eða 22 þúsund, fjárfestingaríbúðir.

Aaldurshópur fólks yfir fimmtíu ára sem telur um 48 prósent allra sem eru 25 ára og eldri eiga um tvo þriðju allra íbúða einstaklinga yfir 25 ára. Þá er yfir þriðjungur, eða 36 prósent, íbúða þessa aldurshóp fjárfestingaríbúðir.

Eftir aðeins fimm ár verður 55% fólks á aldrinum 25-49 ára leiguliðar þeirra sem eldri eru. Gögnin sýna að langvarandi og vaxandi ójafnvægi á húsnæðismarkaði hefur djúpstæð áhrif á þróun samfélags okkar. Mjög takmarkaður skilningur, eða hið minnsta algjört úrræðaleysi, ríkir í samfélaginu gagnvart þessari þróun.

Sigurður Stefánsson er framkvæmdastjóri Aflvaka og er viðskiptafræðingur og endurskoðandi og hefur meðal annars starfað áður sem fjármálastjóri CCP

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Sigurður Fannar í héraðsdómi – réð dóttur sinni bana

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • SOS frá Landssambandi lögreglumanna – Ekki litið á lögreglumenn sem opinbera starfsmenn!

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Vestmannaeyjabær stefnir Vinnslustöðinni – Bótakrafa upp á um tvo milljarða króna

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Landsréttur staðfestir 18 ára dóm yfir konu sem myrti barn sitt

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?