Maðurinn sem drap barnabarn Morgan Freeman’s með 25 hnífstungum, var ekki dæmdur fyrir morð
Maðurinn sem drap barnabarn Morgan Freeman með því að hafa stungið hana 25 sinnum með hnífi í viðurvist marga sjónarvotta hefur ekki verið dæmdur fyrir morð, heldur manndráp
Lamar Davenport, 33 ára, var sakaður um morð af annarri gráðu, sem varð við árás hans á hina 33 ára gömlu E’Dena Hines, sem var kærasta hans á þeim tíma.
Hines var barnabarn af fyrsta hjónabandi Morgans með Jeanette Adair Bradshaw.
Lamar Davenport var dæmdur fyrir manndráp, en eftir að varnaraðili hans hélt því fram að Davenport hefði verið í geðrofi sem hann komst í við það að nota eiturlyfið PCP, var fallið frá því að um morð hefði verið að ræða og hann dæmdur fyrir manndráp.
Maður sem varð vitni að árásinni sagði í vitnaskýrslu þegar að málið var til rannsóknar, að Davenport hefði öskrað: ,,Ég elska þig. Ég elska þig alltaf. Guð hefði viljað þetta“
Eftir að hann var handtekinn dvaldi hann á sjúkrahúsi þar sem hann var deyfður niður með róandi lyfjum. ,,Af hverju gerðist þetta? Nei nei! Hvers vegna Guð? “ Öskraði hann m.a.
Hann spurði einnig aðra handtekna menn hvort þeir tryðu á Jesú og hvatti þá til að iðrast synda sinna.
Hines og Davenport, rappari, höfðu búið saman í 780.000 $ íbúð sem Freeman hafði greitt fyrir. Sambandið var umdeilt, samkvæmt vitni sem gaf skýrslu í rannsókninni segir að Davenport hafi verið með öðrum konum á meðan að parið var saman og hann var háður eiturlyfjum.
Davenport vildi meina að Hines og Freeman hefðu átt í kynferðislegu sambandi en sá orðrómur hafði verið uppi einnig áður.
Freeman sagði við útför Hines. ,,Heimurinn mun aldrei þekkja listgrein hennar og hæfileika. Stjarnan hennar mun halda áfram að skína björt í hjörtum okkar, hugsunum og bænum. Megi hún hvíla í friði.“
Samkvæmt persónulegri vefsíðu Hines, var hún leikari og rithöfundur sem bjó í New York City, þar sem hún stundaði nám við New York University’s Graduate Acting Program.
Háskólinn tilkynnti skömmu eftir andlát hennar að styrktarsjóður sem að mundi úthluta námsstyrkjum, yrði stofnaður í nafni hennar.