Isavia fær engar bætur frá eiganda þotunnar sem kyrrsett var í kjölfar gjaldþrots Wow Air í mars 2019. Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar sem birtur var fyrr í dag en Isavia hafði krafist ríflega tveggja milljarða króna í skaðabætur.
Íslenska ríkið var jafnframt sýknað í Hæstarétti af kröfum Isavia um bætur vegna úrskurðar dómara við Héraðsdóm Reykjaness, sumarið 2019, þess efnis að eiganda þotunnar væri heimilt að flytja hana frá landinu.
Isavia þarf aftur á móti að greiða bandarísku flugvélaleigunni ALC bætur vegna ólögmætrar stöðvunar farþegaþotunnr frá 6. maí til 17. júlí árið 2019. Ekki kemur fram í dómnum hversu hátt það tjón er en samkvæmt ársreikningum Wow Air greiddi félagið að jafnaði 30 til 50 milljónir króna í mánaðarleigu af hverri þotu.
ALC greiddi þann 6. maí árið 2019 87 milljónir króna til Isavia sem var sá hluti skuldar Wow Air sem rekja mátti til flugferða kyrrsettu þotunnar. Eftirstöðvarnar tilheyrðu vangreiddum flugvallargjöldum sem tengdust öðrum þotum sem flugfélagið var með á leigu. Í dómi Hæstaréttar segir að Isavia hafi verið í rétti til að kyrrsetja þotuna fram að þeim tíma en ekki degi lengur og fær ALC ekki bótagreiðsluna endurgreidda líkt og farið var fram á.
Líkt og fram kom í umfjöllun FF7 þá hefur Isavia nú þegar afskrifað 2,3 milljarða króna kröfu á ALC flugvélaleiguna. Isavia þarf auk þess að greiða málskostnað ALC flugvélaleigunnar og eins íslenska ríkisins.