Reyndi um árabil að taka eigið líf
,,Við vitum um fleiri fórnarlömb sem áttu það sameiginlegt að hafa misst foreldri sitt og þessi níðingur nýtti sér sorg þeirra“
,,Árið 1988 fórst Helgi bróðir minn af slysförum. Sonur hans brotnaði í mél og átti mjög erfitt. Sorgin var gjörsamlega að buga hann. Þá bauð Þórhallur honum heim til að hlýða á skilaboð að handan frá pabba. Drengurinn var 17 ára gamall og þráði ekkert heitar en að fá kveðju frá pabba sínum. ,,Pabbi þinn segir að þú sér of spenntur, þurfir að slaka á“ sagði Þórhallur.
Drengurinn var gjörsamlega frosinn, vissi ekki hvað var í gangi, hafði aldrei kynnst öðru eins. Þórhallur sem sagt tók út getnaðrlim drengsins og fróaði honum og bar dáinn föður hans fyrir sig til að réttlæta athæfið. Er til meiri lágkúra? Þessi ungi maður glímdi við áfallastreituröskun, kvíða og óendanlega vanlíðan í árabil og reyndi að taka eigið líf. Loksins, loksins hefur það verið viðurkennt opinberlega hvaða mann þessi svo kallaði „miðill“ hefur að geyma.
https://www.facebook.com/inga.saeland/posts/10220529696505601