Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag má búast við norðvestlægri átt, á bilinu 3-8 m/s. Svo virðist sem sólin ætli að skína áfram glatt á stóran hluta landsins. Stöku síðdegisskúrir munu láta á sér kræla á sunnanverðu landinu ef að líkum lætur, en að öðru leyti er ekki búist við úrkomu. Hitinn verður áþekkur því sem hann var í gær, nokkuð víða 13 til 18 stig yfir daginn, en svalara við norðurströndina þar sem loftið kemur beint af hafi.
Spáin fyrir morgundaginn er síðan svipuð og spáin í dag. Áttin áfram norðvestlæg, en eilítið ákveðnari vindur, á bilinu 5-10 m/s á morgun. Þokkalega bjart á landinu svona heilt yfir, þó má búast við heldur fleiri skýjum á lofti en í dag. Áfram líkur á stöku síðdegisskúrum á sunnanverðu landinu og hámarkshiti dagsins kringum 18 stigin.
Veðurhorfur á landinu
Vestan og norðvestan 3-8 m/s í dag, en 5-10 á morgun. Víða þurrt og bjart veður, en stöku síðdegissskúrir á sunnanverðu landinu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast sunnantil.
Spá gerð: 07.07.2020 05:18. Gildir til: 08.07.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðvestan 5-10 og skýjað með köflum, en 8-13 og dálítil væta við norðausturströndina. Hiti 7 til 12 stig, en 12 til 17 á S-verðu landinu.
Á föstudag:
Vestlæg átt 3-8 og skýjað, en bjart með köflum A-til á landinu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á SA-landi.
Á laugardag:
Suðvestan 5-10 og súld eða dálítil rigning, en skýjað með köflum og þurrt um landið A-vert. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast A-lands.
Á sunnudag:
Suðlæg átt og rigning með köflum, en úrkomulítið A-lands. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast NA-til.
Á mánudag:
Útlit fyrir vestlæga átt með lítilsháttar vætu og mildu veðri.
Spá gerð: 07.07.2020 08:02. Gildir til: 14.07.2020 12:00.