,,Þennan slasaða þorsk veiddi ég út af Breiðafirði í morgun. Hann hefur allavega ekki lent á bíl“ segir strandveiðimaður
Skaði sem togarar stórútgerðarinnar hafa valdið
Strandveiðisjómenn hafa miklar áhyggjur af þeim skaða sem togarar stórútgerðarinnar hafa valdið á undanförnum áratugum á fiskistofnum á Ísland sem og á hafsbotninum. Botnvörpuveiðar á þorski eru stórt og umdeilt umræðuefni innan íslensks sjávarútvegs. Nýjustu rannsóknir sýna að um 33 til 56% af þorski fer undir botnvörpuna og drepst eða slasast.
,,Svona lítur þetta oft út þegar fiskurinn fer undir grjóthopparana. Togararnir eru farnir að sækja á sömu mið og margir færabátar, enda búið að hleypa þeim langt upp í fjöruna. Þá kemur svona fiskur upp – særður, tættur og illa farinn.
Mér dettur í hug að við ættum að safna saman myndum af þessu, öllum þeim fiski sem við fáum upp svona sködduðum. Það gæti verið áhugavert að sýna raunveruleikann.
En maður veltir því óneitanlega fyrir sér – hversu mikið af fiski deyr þarna niðri, eftir svona meðferð?“ Segir strandveiði sjómaður.
Stórútgerðin veldur stórkostlegum og óbætanlegum skaða á fiskveiðiauðlind þjóðarinnar