Hugleiðingar veðurfræðings – Seint á morgun er svo von á nýrri úrkomu gusu
Rigning yfir austanverðu landinu færast smám saman til vesturs og mun rigna um allt land undir kvöld. Vindur verður norðaustan 5-13 m/s. Úrkoman getur verið talsverð um tíma á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum. Hiti yfirleitt 7 til 15 stig.
Dregur heldur úr úrkomu á austanverðu landinu um tíma seinnipartinn, en í nótt hvessir og bætir í úrkomu. í nótt og fyrramálið gera spár ráð fyrir austan og norðaustan 10-18 og rigningu, en léttir til og dregur svo vindi vestantil þegar komur fram á morguninn. Hviður á vestanverðu landinu gætu truflað umferð bíla sem taka á sig mikinn vind og því vissara að fara varlega. Mun hægari og úrkomuminna á Norðausturlandi. Hlýnar heldur.
Seint á morgun er svo von á nýrri úrkomu gusu og tekur hún land á svipuðum slóðum og þær fyrri, eða á Suðausturlandi. Viðbúið er að vatn fari að safnast saman við svona mikla úrkomu á svipuðum slóðum og má því búast við miklum vatnavöxtum um landið suðaustanvert. Spá gerð: 07.09.2025 06:40. Gildir til: 08.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustan 5-13 m/s og rigning í dag, talsverð um tíma suðaustantil, en þurrt um landið vestanvert fram eftir degi. Hvassari um tíma vestast í nótt, en lægir og styttir að mestu upp í fyrramálið. Hiti 7 til 14 stig, svalast á Vestfjörðum.
Austan 5-13 á morgun, en 13-18 suðaustantil. Dálitlar skúrir, en þurrt fyrir norðan. Talsverð rigning suðaustanlands og á Austfjörðum seinnipartinn og annað kvöld. Hlýnar á morgun.
Spá gerð: 07.09.2025 07:57. Gildir til: 09.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Austan og norðaustan 10-18 m/s og víða rigning í fyrstu, en styttir upp og dregur úr vindi víðast hvar um hádegi. Aukin rigning suðaustanlands undir kvöld. Hiti 10 til 16 stig, en svalara á Vestfjörðum.
Á þriðjudag:
Sunnan og suðvestan 5-13, en hvassari við austurströndina fram yfir hádegi. Rigning á köflum, en úrkomulítið norðaustantil. Hægari suðlæg átt undir kvöld og dregur úr vætu. Hiti 9 til 16 stig.
Á miðvikudag:
Austan 5-13, hvassast við austurströndina. Víða dálitlar skúrir, en rigning um landið austanvert eftir hádegi, talsverð rigning suðaustantil. Hiti 8 til 13 stig.
Á fimmtudag og föstudag:
Austlæga átt og úrkomusamt um landið suðaustanvert, annars úrkomuminna og yfirleitt þurrt fyrir norðan. Hlýnar heldur.
Á laugardag:
Útlit fyrir hæga austlæga átt með smá skúrum á víð og dreif. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 06.09.2025 20:08. Gildir til: 13.09.2025 12:00.

