• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sprengjusérfræðingar frá 17 löndum á Íslandi

Sprengjusérfræðingar frá 17 löndum á Íslandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. október 2024
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0
Sprengjusérfræðingar frá 17 löndum munu á næstu tveimur vikum æfa viðbrögð við ýmsum ógnum á hinni árlegu Northern Challenge. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atlantshafsbandalagsins sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar annast og skipuleggur. Alls 320 þátttakendur frá Íslandi, Belgíu, Kanada, Tékklandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Litáen, Nýja Sjálandi, Svíþjóð, Noregi, Austurríki, Póllandi, Hollandi og Bretlandi taka þátt að þessu sinni.

Á æfingunni gefst sprengjusérfræðingunum kostur á að æfa og samhæfa viðbrögð við atvikum sem kunna að koma upp, eins og t.d hryðjuverkum. Á æfingunni er líkt eftir sprengjum sem fundist hafa víða um heim og þurfa þátttakendur að meðhöndla þær og aftengja. Þetta er í tuttugasta og þriðja sinn sem Northern Challenge er haldin hér á landi. Sem fyrr fer æfingin að stærstum hluta fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli en einnig í Helguvík og í Hvalfirði.

Æfingin veitir sprengjusérfræðingum, sem koma hvaðanæva að úr heiminum, einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu sinni til annarra liða. Northern Challenge hefur notið mikillar virðingar á meðal þjóða NATO og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga innan Atlantshafsbandalagsins. Æfingin hefst í dag og stendur til 9. október.

Stjornstod-a-oryggissvaedinuStjórnstöð á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Ekið á gangandi vegfaranda

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Lögreglan leitar manns

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?