Vegna ummæla Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur og Björns Levís Gunnarssonar í fjölmiðlum um framgöngu þingflokks Píratar gagnvart mér og nokkrum Pírötum vil ég koma eftirfarandi á framfæri.
Fólk sem tekur þátt í flokkspólitík á ekki að þurfa að búa við að þingflokkur stjórnmálahreyfingar hnýsist í einkasamtöl flokksfélaga. Þingflokkur er ekki rannsóknarréttur yfir flokksfélögum sínum. Þingmenn eiga ekki að sjá sig sem trúarlögreglu flokka.
Þingflokkur Pírata braut á mér og átta öðrum Pírötum
Þingflokkur Pírata braut á mér og átta öðrum Pírötum með því að skoða, dreifa og taka fyrir einkasamtöl hópsins um stjórnmálaþátttöku innan Pírata.
Fundur um þetta fór fram að morgni 9. september, tveimur dögum eftir aðalfund flokksins. Í kjölfarið var gögnunum dreift meðal ‘flokkseigenda’ svo að halda mætti áfram að grafa undan réttkjörinni stjórn.
Rétt væri að þingflokkurinn bæði okkur afsökunar og reyndi að bæta fyrir brotin. Því miður hefur þó ekkert komið úr þeim ranni annað en afneitanir og réttlætingar á framkomu sem ég myndi ekki óska neinum.
Frétt mbl.is með réttlætingum Þórhildar Sunnu: https://www.mbl.is/…/ser_ekkert_ad_thvi_ad…/
Frétt mbl.is með réttlætingu Björns Leví: