Íslendingur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð

Rúmlega fertugur hálf-íslenskur karlmaður, Guðmundur Mogensen, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í morgun fyrir að myrða konu á sjötugsaldri á heimili hennar í Akalla, norður af Stokkhólmi.

Ríkisútvarpið greindi fyrst frá og í ítarlegri frétt segir að maðurinn hafi viðurkennt morðið í færslu á Instagram en hann eyddi henni stuttu síðar. Við réttarhöldin viðurkenndi hann hins vegar að hafa banað konunni.

Sænska ríkissjónvarpið hefur upp úr dómsorði að morðið hafi verið framið að undirlögðu ráði; konan hafi verið skotin ítrekað í höfuðið. Aðstæðurnar séu þess eðlis að ekkert annað en lífstíðardómur hafi komið til greina.

Fjallað var um málið í fréttaskýringaþættinum Þetta helst á Rás 1 í september. Málið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð enda enn eitt dauðsfallið í gengjastríði sem þar hefur geisað undanfarin ár. Sænskir fjölmiðlar segja að málið sé hefndaraðgerð og tengist syni konunnar, sem er leiðtogi í einu gengjanna.

Þetta helst – Spilari RÚV

Umræða

Hæ!

Login to your account below

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?