Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu handtók Karl Inga Vilbergsson eftir atvik á skemmtistað í ágúst og færði hann í fangageymslu. Honum hefur verið boðið að ljúka málinu með sekt. Karl Ingi neitar því að lögbrot hafi verið framið.
Fjallað er ítarlega um málið hjá ríkisútvarpinu og þar kemur fram að Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, var handtekinn fyrir utan skemmtistað í Reykjavík og látinn gista í fangageymslu þann 9. ágúst.
Dyraverðir kölluðu til lögreglu eftir samskipti við Karl Inga og aðra gesti staðarins, í kjölfarið var Karl Ingi svo handtekinn og færður í fangageymslu, þar sem hann gisti um nóttina.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu bauð Karli Inga að ljúka málinu með því að greiða 30 þúsund króna sekt. Karl Ingi hefur mótmælt sektinni og segir í samtali við RÚV að ekkert lögbrot hafi verið framið. Málið er enn til meðferðar hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.
Karl Ingi var í sumarfríi þegar atvikið átti sér stað. Hann kom aftur til starfa síðar í ágúst og var þá meðal annars saksóknari í Þorlákshafnarmálinu. Þá kemur fram að Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari hafi verð upplýstur um málið.
„Við getum voðalega lítið tjáð okkur starfsmannamál annað en að málið var tekið til skoðunar hjá embættinu og afgreitt.” – Berð þú fullt traust til Karls Inga? „Já, við gerum það, að vandlega athuguðu máli,” segir Ólafur Þór Hauksson í samtali við ríkisútvarpið.
Saksóknari sökuð um ofbeldi, húsbrot, eignaspjöll, þjófnað og brot gegn barnaverndarlögum

