Namibíumenn segja að Samherji hafi ekki greitt skatta í Namibíu heldur aðeins mútað sex einstaklingum og haldið svo hagnaðinum fyrir sjálfa sig
Samfélag Namibíumanna í Bandaríkjunum afhenti sendiherra Íslands í Washington yfirlýsingu þar sem ,,íslensk stjórnvöld eru sögðu skulda namibísku þjóðinni afsökunarbeiðni vegna Samherjamálsins.
Einnig eigi íslensk stjórnvöld að láta Samherja „skila peningunum til namibísku þjóðarinnar.“
Andstöðu lýst við orð Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sem breska blaðið The Guardian birti
Samfélag Namibíumanna í Bandaríkjunum greinir frá fundinum með Bergdísi Ellertsdóttur sendiherra á Facebook síðu félagsins. Þar er yfirlýsingin sem henni var afhent einnig birt. Rúv fjallaði um málið í hádegisfréttum. Í yfirlýsingunni segir meðal annars að þau séu meðvituð um að margir, sérstaklega fólk frá Vestur-Evrópuríkjum haldi að spilling sé venjan í Afríku. Það sé ekki raunin, meirihluti Namibíumanna þurfi að streða fyrir lifibrauði sínu.
Íslensk stjórnvöld skulda þjóðinni afsökunarbeiðni
Þá kemur einnig fram að það er fullyrt að „spilltir viðskiptahættir“ Samherja hafi rænt Namibíumenn tækifærinu á því að hagnast á eigin auðlindum. Þjóð sem hafi fórnað lífi sínu til þess að ná sjálfstæði frá Þýskalandi sé enn og aftur arðrænd, í þetta sinn af Íslandi.
Þá er þess krafist að íslensk stjórnvöld beiti sér í málinu. Það sé þó ekki nóg að sækja þessa einstaklinga til saka heldur eigi Samherji að skila peningunum aftur til namibísku þjóðarinnar og íslensk stjórnvöld skuldi þjóðinni afsökunarbeiðni.
Hefur þú áhuga á að hjálpa Fréttatímanum að vaxa og dafna?
Með því að styrkja Fréttatímann stuðlar þú að frjálsri og óháðri umfjöllun.
https://www.facebook.com/Namibiancommunity/posts/2371864166257594
https://gamli.frettatiminn.is/2019/12/04/hagnadur-af-meintum-brotum-samherja-gerdur-upptaekur/