• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

Kastaði hundi í lögreglumann – Átta í fangaklefum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. desember 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0
Það helsta frá dagbók lögreglu er að þegar þetta er ritað eru átta manns vistaðir í fangaklefum lögreglu. Alls eru 81 mál bókuð frá tímabilinu kl. 17:00-05:00.

Nokkur minniháttar umferðaslys tilkynnt ásamt töluvert af heimilisofbeldis- og ágreiningsmálum. Sjö ökumenn stöðvaðir í umferðinni sem reyndust ölvaðir víðsvegar um umdæmið. Borgararnir aðstoðaðir á margvíslegan hátt og listinn hér að neðan alls ekki tæmandi.

Lögreglustöð 1

Aðila vísað út af neyðarskýli Reykjavíkurborgar sökum æsings. Tveimur klukkustundum seinna var sami aðili tilkynntur að hafa ráðist á annan skjólstæðing gistiskýlisins með flösku eftir að sá síðarnefndi sló hann. Þeir báðir mjög ölvaðir og ekki í ástandi til að vera meðal almennings. Vistaðir í klefa.

Ágreiningur milli mæðra tilkynntur í Reykjavík. Á vettvangi reyndi lögregla að stilla til friðar sem virtist vera að takast þegar móðirin, sem var töluvert ölvuð, kastaði litlum hundi sem hún var með í fanginu í bringu lögreglumanns. Hundurinn var ómeiddur eftir kastið. Móðirin var að lokum handtekin og vistuð í klefa vegna nokkurra brota.

Ökumaður var stöðvaður í umferðinni. Fljótlega vaknaði grunur að hann væri undir áhrifum fíkniefna og var hann því handtekinn. Á honum fannst síðan töluvert magn taflna, smelluláspoka og peninga þar sem grunur vaknaði um sölu fíkniefna. Aðspurður vildi ökumaðurinn ekki heimila lögreglu að skoða farsíma hans. Vistaður í klefa í þágu rannsóknar málsins.

Tilkynnt um tvo eldri menn sem voru til ama í miðborginni. Þeir neituðu báðir að gefa upp nafn og kennitölu og voru því handteknir. Þeir létu þó loks undan á lögreglustöðinni og gáfu það upp. Þeir lausir að því loknu.

Lögreglustöð 2

Tilkynnt um barn sem hafði orðið læst inni í herbergi í íþróttahúsi. Áður en lögregla kom hafi starfsmenn og foreldrar þó náð barninu út á heilu og höldnu.

Tilkynnt um líkamsárás á dyravörð á bar í Hafnarfirði. Sá var mjög ölvaður, óðamála, talaði samhengislaust og andlega veikur en lögreglumenn þekkja hann vegna fyrri afskipta. Hann vistaður í klefa.

Lögreglustöð 3

Tilkynnt um megna klórlykt á stigagangi fjölbýlis þar sem menn voru að hlaupa út úr íbúð í húsinu. Mikil ammoníaklykt var á vettvangi þegar lögregla kom og var slökkvilið fengið til þess að reykræsta íbúðina. Húsráðandi sagðist hafa verið að spreyja skordýraeitri inni í íbúðinni til þess að drepa flugur en hann var síðan fluttur til frekari aðhlynningar af sjúkraflutningsmönnum. Við skoðun í íbúðinni fannst vopn og nokkuð magn fíkniefna.

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Togarar á strandveiðum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?