Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar ítalska flughersins. Alls munu allt að 140 liðsmenn ítalska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar Eurofighter Typhoon EF-2000 orrustuþotur.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 11 til 15 mars. Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ráðgert er að verkefninu ljúki um miðjan apríl. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia.
Hér má sjá kynningarmyndband um ítalska herinn:
https://www.youtube.com/watch?v=ZacPUEOAqfM