Horfur fyrir lánshæfi ríkissjóðs breytast úr stöðugum í jákvæðar hjá matsfyrirtækinu S&P Global Ratings. Er það byggt á sterkri stöðu ríkisfjármála og væntingum um áframhaldandi bata á næstu tveimur árum. Fjármála- og efnahagsráðherra segir þetta hvatningu til að halda áfram af festu.
Lánshæfi endurspeglar mat á getu lántakenda til að standa við skuldbindingar sínar að fullu og á réttum tíma. Lánshæfismat skiptir því verulegu máli á fjármálamörkuðum og hefur áhrif á þau lánskjör sem lántakendum, eins og ríkissjóði, bjóðast hverju sinni.
Tilkynnt var um breytinguna við lokun markaða vestanhafs í gær en samhliða jákvæðum horfum voru lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs til skemmri og lengri tíma staðfestar í ‘A+/A-1’.
Horfur batnað hjá matsfyrirtækjunum þremur
Lánshæfismat íslenska ríkisins hefur batnað á undanförnum misserum hjá matsfyrirtækjunum þremur; Moody´s, S&P Global Ratings og Fitch ratings. Síðasta breyting varð í febrúar þegar Fitch ratings hækkaði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs um einn flokk í A+. Horfur um einkunnina höfðu þá verið jákvæðar hjá Fitch í um hálft ár.
Jákvæðar horfur geta að óbreyttu leitt til hækkunar á lánshæfiseinkunn, gangi þær forsendur eftir sem fyrirtækin setja fram til grundvallar mati sínu. Sterkari staða opinberra fjármála, horfur á lækkandi skuldahlutfalli og samstaða um varfærni í ríkisfjármálum eru lykilþættir til bætts lánshæfismats.
„Ábyrg stjórn ríkisfjármála er lykilatriði. Stór skref hafa verið tekin með stöðugleikareglu, uppgjöri ÍL-sjóðs og sölunni á Íslandsbanka. Næsta verkefni er hallalaus fjárlög,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Horfur eru stöðugar hjá Moody´s en fyrirtækið birtir næst uppfært mat sitt á lánshæfi ríkissjóðs þann 27. mars n.k.

