• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 11. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Nýtt meðferðarheimili í Gunnarsholti hefur störf

Nýtt meðferðarheimili í Gunnarsholti hefur störf

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Meðferðarheimilið Lækjarbakki hóf störf í nýju húsnæði í Gunnarsholti og tók á móti sínu fyrsta barni í dag. Opnunin markar mikilvægan áfanga í framhaldsmeðferð fyrir drengi sem glíma við vímuefnavanda.

Nýja meðferðarheimili Barna- og fjölskyldustofu eykur getu samfélagsins til að bregðast við erfiðum og flóknum málum barna og ungmenna á Íslandi.

Á Lækjarbakka verður pláss fyrir sex ungmenni.

„Löng bið er á enda og mikið fagnaðarefni að Lækjarbakki sé tekinn til starfa í nýju og endurbættu húsnæði” segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.

Nýtt og endurbætt húsnæði er sérstaklega hannað með þarfir skjólstæðinga í huga þar sem horft er til að skapa heimilislegt yfirbragð og hlýlegt umhverfi með öryggi í fyrirrúmi.

Sterkur faglegur grunnur er undirstaða vandaðrar meðferðar og öruggrar þjónustu. Undanfarna mánuði hefur starfsfólk Lækjarbakka unnið af þrautseigju við undirbúning starfseminnar.

Starfsmenn hafa hafið störf á Lækjarbakka og fengið yfirgripsmikla þjálfun í þeirri aðferðafræði sem beitt er á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu. Meðferðin er sérhæfð fyrir ungmenni og byggir á samþættingu gagnreyndra aðferða og einstaklingsmiðaðrar nálgunar.

Formleg opnun fer fram síðar í mánuðinum en brýnt er að hefja þjónustu strax til að mæta þörfum barna sem beðið hafa eftir langtímameðferð. Tekið var því á móti fyrsta skjólstæðingnum um leið og tilskilin leyfi lágu fyrir.

Vonir standa til að þessi nýja aðstaða reynist farsæl til framtíðar fyrir börn í viðkvæmri stöðu sem þurfa sérhæfða þjónustu og stuðning.

„En betur má ef duga skal og eru fleiri járn í eldinum,“ segir Inga. „Nú er tími til að börnin okkar fái þá þjónustu sem þurfa. Börnin fyrst, svo allt hitt.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Ó­lög­mæt eigna­upp­taka í gegnum verð­tryggingu eru 60 milljarðar síðustu þrjú ár

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Laus hundur veittist að barni

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • ,,Frekja, græðgi og yfirgangur – eigum við ekki að rísa upp gegn þessu?“

    129 deilingar
    Share 126 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?