Tveir eru í klefum á lögreglustöð þegar þetta er ritað en um kl. 9 í morgun voru allir klefar á lögreglustöðinni á Hverfisgötu fullir. 62 mál skráð á tímabilinu, nokkrir ökumenn vímaðir við akstur stöðvaðir víðsvegar um umdæmið.
Lögreglustöð 1
Óljós tilkynning barst um öskur og læti frá íbúð í Reykjavík. Þegar lögregla kom á staðinn voru munir brotnir fyrir aftan húsið þar sem einn íbúi stóð á svölunum og öskraði. Þegar lögreglumenn ætluðu að nálgast hann í gegnum sameign hússins sprautaði aðilinn úr slökkvitæki að lögreglumönnum og henti því svo niður stiga á móti lögreglumönnunum. Lögregla komst að lokum inn til íbúð mannsins þar sem hann ræddi við lögreglu en var óútreiknanlegur. Hann handtekinn. Sjá mátti hnífaför í vegg í herbergi mannsins ásamt ummerki um áfengis- og fíkniefnaneyslu. Vistaður í klefa uns hægt var að taka framburð af honum.
Tilkynnt um glannalegan akstur á snjómoksturstæki. Ökumaðurinn reyndist vera vímaður og sviptur ökuréttindum. Hann handtekinn og blóðsýni tekið.
Lögreglustöð 3
Aðili stöðvaður af lögreglu við matvöruverslun í Kópavogi sem reyndist eftirlýstur og ölvaður. Þá var hann með útdraganlega kylfu meðferðis. Handtekinn og vistaður í klefa.
Tilkynnt um ökumann sem ók á bifreið tilkynnanda og stöðvaði ekki. Tilkynnandi elti ökumanninn heim til hans en tveir voru í bifreiðinni. Lögregla fann aðilanna í íbúð þar sem annar þeirra faldi sig í fataskáp. Þeir neituðu báðir fyrir að hafa verið að aka bifreiðinni og voru báðir ölvaðir. Handteknir og vistaðir í klefa.
Lögreglustöð 4
Ökumaður aðstoðaður eftir að hann ók á ljósastaur og ökutækið hafnaði utan vegar. Bifreiðin ökufær og ökumaður óslasaður.

