• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 11. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stimpilgjöld hafi skaðlegri áhrif en aðrir skattar

Varanleg heimild til ráðstöfunar séreignar á húsnæðislán

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. mars 2026
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Aukið valfrelsi og fyrirsjáanleiki í ráðstöfun séreignarsparnaðar, ásamt ákalli um endurskoðun lífeyriskerfisins og fækkun opinberra inngripa á húsnæðismarkaði, er meðal þess sem fram kemur í umsögn Viðskiptaráðs um drög að frumvarpi til laga um varanlega ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Viðskiptaráð hvetur til þess að frumvarpið nái fram að ganga

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um drög að frumvarpi til laga um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.

Með frumvarpinu er lagt til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól lána verði fest í sessi og að samhliða verði nýting hennar takmörkuð við 10 ár. Viðskiptaráð fagnar áformum stjórnvalda um aukinn fyrirsjáanleika þegar kemur að valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar. Rétt er að benda á að hlutfall eiginlegs skyldusparnaðar á Íslandi er hátt í alþjóðlegum samanburði, en þar vegur þyngst hækkun lögbundins lífeyrissparnaðar í 15,5% árið 2018, en eftir breytinguna nema iðgjöld í lífeyrissjóði, að meðtöldum séreignarsparnaði, í flestum tilfellum 19,5% af launum.

Af skyldubundna lífeyrisgjaldinu er einungis heimilt að láta 3,5% renna í tilgreinda séreign. Ljóst er að eftir því sem hlutfall lífeyrissparnaðar einstaklinga í lífeyrissjóðum hækkar minnkar hvati launþega til að spara til efri áranna með eigin fjárfestingum. Viðskiptaráð hvetur til þess að samhliða varanlegri framlengingu skattfrjálsrar ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána verði hugað að því að endurskoða ákveðna þætti lífeyriskerfisins og auka enn frekar valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar.

Viðskiptaráð leggur einnig til að samhliða því að festa ráðstöfun séreignarsparnaðar á höfuðstól húsnæðislána verði önnur opinber inngrip á húsnæðismarkaði afnumin, t.a.m. stofnframlög til óhagnaðardrifinna leigufélaga. Þá ætti að taka hlutdeildarlán til gagngerrar endurskoðunar með það fyrir augum að fasa úrræðið út. Hlutdeildarlán eru til þess fallin að ýta undir frekari verðþrýsting á fasteignamarkaði og grafa undan yfirlýstu markmiði lánanna um að stuðla að því að fleiri geti eignast eigið húsnæði, en rannsóknir sýna að mikill meirihluti Íslendinga vill búa í eigin húsnæði.

Að framangreindu virtu hvetur Viðskiptaráð til þess að frumvarpið nái fram að ganga.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Ó­lög­mæt eigna­upp­taka í gegnum verð­tryggingu eru 60 milljarðar síðustu þrjú ár

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Laus hundur veittist að barni

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • ,,Frekja, græðgi og yfirgangur – eigum við ekki að rísa upp gegn þessu?“

    129 deilingar
    Share 126 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?