Sir Alex Ferguson er vaknaður úr dái og sýnir góð merki um bata eftir bráðaaðgerðir vegna heilablóðfalls
Breski fyrrverandi knattspyrnustjóri Man.utd er enn undir eftirliti lækna og er umkringdur vinum og ættingjum á Salford Royal Hospital. Hann er farinn að tala og spyrja um niðurstöður aðgerðarinnar á spítalanum, þar sem að hann situr í rúmi sínu.
Skurðaðgerðin gekk mjög vel og viðbrögð hins 76 ára Alex Ferguson við aðgerðinni gefur aðstandendum bjartsýni og von um góðan bata. Hins vegar er rætt um að það geti tekið tíma fyrir hann að jafna sig til þess að ná fullum bata en tíminn mun leiða það í ljós.
Fréttir af ástandi Ferguson hefur farið eins og eldur í sinu um fótboltaheiminn en eins og allir vita er Ferguson lifandi goðsögn á þeim vettvangi og vann hann m.a. 38 titla á 26 ára ferli á Old Trafford en hann lét af störfum árið 2013.
United hefur fengið óskir um batakveðjur fyrir Alex Ferguson um allan heim segir Carrick hjá Man.utd og bætti við: ,,Það sýnir bara stöðu mannsins og virðinguna sem borin er fyrir honum.
Ryan Giggs, fyrrum United leikmaður sem er nú framkvæmdastjóri Wales, tók undir orð Carrick og bætti við. ,,Það var mikið áfall þegar fréttirnar bárust, Ferguson hefði verið stærsta áhrifavaldur á ferili hans, bæði á og utan vallarins. Mér skilst að aðgerðin hafi gengið vel og ég held að næstu dagar séu mikilvægir. Nú er kominn tími til að biðja og vona að hann geti náð fullum bata. Ég veit að hann er bardagamaður og það er það sem gerir mig jákvæðan með það hann muni geta náð góðum bata.