Enn eitt veiðitímabilið er hafið í stangaveiðinni. Vorveiðimenn eru þegar byrjaðir í ám og vötnum en auk þess er sá silfraði farinn að sýna sig. Laxveiðin er að komast á fullt en hún hófst formlega 1. júní þegar opnað var fyrir veiði í Urriðafossi í Þjórsá.
Í þessu tölublaði er stangaveiði gert hátt undir höfði enda stangaveiðitímabilið nýlega hafið. Laxveiðin er á næsta leiti í mörgum ám og sumstaðar hafin. Veiðimenn eru hugsi yfir hlýju vori. Einhverjir þeirra eru smeykir við vatnsstöðu þegar líður á sumarið en flestir eru bjartsýnir og hafa engar áhyggjur og taka því sem að höndum ber.
Við vonum að þú, lesandi góður, njótir blaðsins og hvetjum þig til að senda okkur efni, sögur og myndir til birtingar í blaðinu. Við hvetjum lesendur til að gerast áskrifendur en auðvelt að skrá sig á heimasvæði okkar sportveidibladid.is
Í nýútkomnu Sportveiðiblaði segir Björn K. Rúnarsson, leigutaki og leiðsögumaður í Vatnsdalsá frá draumavaktinni sem hann átti með Haraldi Noregskonungi á sínum tíma. Haraldi var boðið í veiði í Vatnsdalnum og það kom í hlut Björns að vera leiðsögumaðurinn hans. Kóngurinn kom aðeins á eftir öðrum gestum og var Hnausastrengur geymdur fyrir hann. Fyrsta spurning Bjössa til kóngsins var; „Hvernig á ég að ávarpa þig?“ Hann svaraði að bragði. Þegar við erum komnir í vöðlur þá erum við jafningar.
Í Hnausastreng byrjaði svo túrinn í fylgd norskra hermanna og víkingasveitarinnar íslensku. Fljótlega setti Haraldur í vænan lax og landaði eftir mikinn bardaga. Var hann rétt rúmlega hundrað sentímetra langur. Þegar þeir keyrðu burt frá veiðistaðnum til að fara í hús sjá þeir hvar fálki steypir sér á rjúpu og rífur hana svo í sig í framhaldinu. Eftir að hafa fylgst með þessu í drjúga stund leit Noregskonungur á Bjössa og spurði; „Hvað ætlarðu svo að sýna mér á morgun?“ Báðir sprungu úr hlátri, enda þvílík vakt að baki að hún yrði aldrei toppuð.
Sportveiðiblaðið er að vanda efnismikið og er þar fjallað um veiði á Íslandi og í öðrum heimsálfum. Náttúrubarnið síkáta Jógvan Hansen er í viðtali og rætt er við nokkra af frammámönnum í stangaveiði á Íslandi.
