„Til upprifjunar. Hér er hópur manna sem trúir því staðfastlega að fiskur fari ekki undir troll með tilheyrandi skaða. Við erum búin að vita það frá því árið 2005 að fiskur fari undir trollið. Enn og aftur voru og eru einstaklingar sem að neita að trúa þessu

Svo kemur þetta myndband hér sem að kemur úr ransókn sem gerð var á Íslandi, við vestfirði. Þetta er ekki flókið félagar, fiskurinn er að fara undir trollið. Það er sannað og í þessu myndbandi þá er áverkunum lýst. Nú er búið að benda öllum á það hvernig þessi ummerki eru á fisknum. Blóð sprungnar varir og uggar. Og við erum að fá þennan fisk á krókana, og sýna öllum hvað þetta er algengt.
Ef togveiði skipstjórar vilja ekki að þetta sé í dreifingu. Þá kannski er ágætt að vera ekki að toga upp í fjöru eða á svæðunum sem að trillurnar eru að fiska á, því þá fáum við ekki þennan blóðsprungna fisk sem að liggur eins og hráviði um allan botninn eftir þetta veiðarfæri.
Stór hluti fiskjar sleppur fram hjá botntrolli eða kremst undir því samkvæmt niðurstöðum í rannsókn sem unnin var við hafrannsóknunarstofnunina í Bergen í Noregi árið 2005. Ekki hefur verið lagt mat á umfang skaðans en líkur eru á að hann sé verulegur miðað við niðurstöður rannsóknarinnar.
Rannsóknin er doktorsrannsókn sem unnin var af Ólafi Ingólfssyni við Hafrannsóknarstofnunina í Bergen í Noregi. Greint er frá niðurstöðum hennar á heimasíðu Interseefood.com. Niðurstöður benda til þess að þriðjungur þorsks, 24% ýsu og 10% ufsa fara undir botntrollið, kremjast, drepast eða jafnvel sleppa framhjá því.
Rannsókn Ólafs sýnir að smár fiskur er í hættu og getur drepist undir veiðarfærum togskipa en í Noregi er leyfilegt að nota smáfiskaskiljur á svæðum þar sem hlutfall smáfiskjar er hátt. Við rannsóknina voru notaðar neðansjávarmyndavélar en myndirnar sýna hvernig fiskurinn leggst á botninn og fer undir trollið.
Fiskifræðingur segir kvótakerfið algerlega brugðist og lagt landsbyggðina í rúst