Heilbrigðisráðuneytið hefur á liðnum mánuðum unnið að umfangsmikilli greiningu á geðheilbrigðisþjónustu við börn á öllum þjónustustigum heilbrigðiskerfisins. Markmiðið er að skipuleggja umbreytingar með áherslu á að stytta biðtíma, einfalda boðleiðir, auka skilvirkni og bæta þjónustu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að kynna fyrsta áfanga fyrirhugaðra breytinga í haust.
Líkt og fram kemur í stjórnarsáttmála leggur ríkisstjórnin sérstaka áherslu á að stytta biðlista barna, auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og fjármagna meðferðarúrræði vegna fíknivanda.
Alma D. Möller hefur frá því hún tók við embætti heilbrigðisráðherra sett geðheilbrigðisþjónustu við börn í forgang og ákvað strax að setja af stað vinnu til að greina þjónustuferla og núverandi skipulag þjónustunnar og hvort og hvaða breytingar megi gera til úrbóta. Í þeirri vinnu hefur m.a. verið lögð rík áhersla á notendasamráð, þ.e. börn og aðstandendur þeirra, m.a. til að skilja fjölbreyttar og ólíkar þarfir notenda og sýn þeirra á hvað helst þarf að bæta.
„Það er alveg ljóst að hægt er að einfalda núverandi þjónustukerfi, stytta boðleiðir og auka samstarf milli þjónustuveitenda. Það eru vísbendingar um að í greiningarferlum, t.d. vegna ADHD megi auka skilvirkni með meiri og markvissari samvinnu þeirra sem að greiningum koma, skýrari verkferlum, nýtingu rafrænna lausna og betra upplýsingaflæði. Síðast en ekki síst þurfa notendur vandaða upplýsingagjöf og vegvísun um þjónustukerfið í samræmi við þarfir hvers og eins“ segir Alma. Hún segir jafnframt afar mikilvægt að lagfæra og skýra ferla, áður en – eða samhliða því sem þjónustan er styrkt með auknu fjármagni.
Geðheilsumiðstöð barna er sú stofnun sem oftast framkvæmir mat vegna gruns um ADHD eða röskun á einhverfurófi. Þar hefur undanfarið verið unnið að ýmsum útbótum til að stytta bið eins og kostur er með breytingum á verklagi. Heilbrigðisráðherra kynnti sér störf miðstöðvarinnar í mars sl. og tilkynnti þá jafnframt um aukið fjármagn til að fjölga þar stöðugildum og stuðla þannig að styttri bið eftir greiningum.
Þjónusta við börn með fjölþættan vanda hefur lengi verið umfjöllunarefni og ásteytingarsteinn í samskiptum ríkis og sveitarfélaga, bæði hvað varðar fyrirkomulag þjónustunnar og innihald. Í mars sl. var undirritað samkomulag sem felur í sér að ríkið tekur að sér framkvæmd og ber ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við þennan hóp. Þá er um að ræða börn með miklar stuðningsþarfir sem þarfnast m.a. tímabundinnar vistunar utan heimilis.
Í mars sl. úthlutaði heilbrigðisráðherra styrkjum úr Lýðheilsusjóði og voru þá m.a. veittar 27 milljónir króna í styrki til Foreldrahúss og SÁÁ vegna sálfræðiþjónustu við börn, auk styrkja til fleiri verkefna á sviði forvarna og þjónustu sem snýr að börnum.
Samvinna ráðuneyta: Heilbrigðisráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið vinna sameiginlega að ýmsum verkefnum til að bæta þjónustu við börn. Má þar nefna aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem vistast á Stuðlum og aðgerðir til að sporna við ofbeldi gegn börnum og meðal barna.
- Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna á breiðum grunni – stöðutaka
- Skimun fyrir ofbeldi hjá börnum – skýrsla um ferlið og framtíðarverkefni
- Úthlutun styrkja úr Lýðheilsusjóði 2025
- Samkomulag í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um […] þjónustu við börn með fjölþættan vanda