• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Brostin hjörtu

Bönkum óheimilt að neita fólki í greiðsluerfiðleikum

Lög kveða skýrt á um rétt neytenda til úrræða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. ágúst 2025
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ásgeirsson lögfræðing og formann Hagsmunasamtaka heimilanna í Síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu um rétt neytenda sem eiga í greiðsluerfiðleikum.

Mjög athyglivert viðtal þar sem kom fram í máli Guðmundar að bankar og aðrir lánveitendur neita fólki um breytingar á lánum þrátt fyrir að lög kveði skýrt á um rétt neytenda til úrræða áður en til nauðungarsölu kemur. Höfnun á grundvelli greiðslumats í slíkum tilvikum stenst ekki lög. 

Greiðslumat ekki áskilið við lægri greiðslubyrði

Guðmundur benti á að samkvæmt lögum um fasteignalán til neytenda frá nr.118/2016 sé ekki skylt að framkvæma greiðslumat ef endurfjármögnun eða skilmálabreyting hækkar ekki greiðslubyrði. Undanþágur gilda einnig ef hækkun greiðslubyrðar er innan við 20% eða ef breytingar eru gerðar sérstaklega vegna greiðsluerfiðleika.

Í þættinum kom fram að bankar hafi í mörgum tilvikum vísað frá umsóknum á þessum grundvelli, jafnvel þótt lögin krefjist þess ekki. Guðmundur sagði að í slíkum tilvikum væri annað hvort um vanþekkingu eða rangtúlkun á lögum að ræða. Sú framkvæmd væri ekki í samræmi við lagaramma sem ætlaður er til að verja neytendur í viðkvæmri stöðu.

Skylda til að bjóða úrræði áður en til nauðungarsölu kemur

Í máli Guðmundar kom fram að lánveitanda beri lögbundin skylda til að vinna með neytanda að lausn greiðsluvanda áður en nauðungarsala kemur til greina. Það felur í sér að veita beri fólki skilmálabreytingar, endurfjármögnun eða frestun greiðslna. Samkvæmt lögunum er ekki heimilt að vísa fólki frá þessum úrræðum með því einu að það standist ekki greiðslumat. Guðmundur lagði áherslu á að með því að neita einstaklingum í greiðsluerfiðleikum um möguleika til að bæta stöðu sína séu fjármálastofnanir að auka líkur á vanskilum og nauðungarsölum sem lögin beinlínis miði að því að koma í veg fyrir.

Ábyrgð lánveitenda á að forðast vanda

Fram kom í þættinum að tilgangur laganna sé ekki einungis að vernda fjármálastöðugleika heldur einnig að tryggja neytendavernd. Lánveitendur eigi samkvæmt lögum að grípa til úrræða áður en greiðsluvandi versnar. Ef slík úrræði eru ekki boðin og greiðslumat er notað sem hindrun eru bankar að brjóta gegn þeim skyldum sem lögin leggja á þá.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Bankar hóta fyrirtækjum sem taka á móti reiðufé – Stenst þetta lög?

Umræða
Share36Tweet23
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöldi

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Tvö hundruð milljóna styrkur til innflytjenda

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?