• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 6. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Langímaatvinnuleysi er talið fara vaxandi og almennt eru dökkar horfur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Í nýrri skýrslu ASÍ um íslenskan vinnumarkað er að finna umfangsmiklar greiningar og ítarlega er fjallað um áhrif heimsfaraldurs kórónuveiru (COVID-19) á íslenskt hagkerfi og vinnumarkað. Í skýrslunni kemur fram að erlent launafólk er sá hópur sem orðið hefur fyrir mestum búsifjum af völdum faraldursins. Rúm 40% þeirra sem nú eru á atvinnuleysisskrá eru erlendir ríkisborgarar. Þeir voru um 20% starfandi á vinnumarkaði áður en COVID-19 reið yfir.   
Faraldurinn hefur lagst með fullum þunga á ferðaþjónustuna í landinu sem kunnugt er. Í skýrslunni kemur hins vegar fram að  viðvörunarljós voru þegar tekin að blikka á íslenskum vinnumarkaði áður en útbreiðsla Covid-19 hófst. Ólíkt aðstæðum í kjölfar bankahrunsins 2008 var þó nokkurt atvinnuleysi og langtímaatvinnuleysi áður en Covid-19 gerði vart við sig.
Í skýrslunni kemur fram að sérstakt áhyggjuefni sé að einstaklingum utan vinnumarkaðar fari fjölgandi. Ungmennum sem eru hvorki starfandi né í námi hefur fjölgað ásamt því að vaxandi hlutfall hverfur brott af vinnumarkaði vegna örorku og tímabundinna veikinda.
Langímaatvinnuleysi er talið munu fara vaxandi og almennt eru dökkar horfur á íslenskum vinnumarkaði.
Það er mat ASÍ að brýnt sé að bregðast við atvinnuleysinu sem er af áður óþekktri stærð hér á landi. Í skýrslunni er lagt til að bótatímabil atvinnuleysistrygginga verði lengt, grunnbætur af dagvinnutekjutryggingu verði hækkaðar og hlutabótum verði viðhaldið svo lengi sem þörf er á. Að auki sé aðkallandi að fjárfesta í þjónustu og úrræðum til að virkja atvinnuleitendur og efla færni þeirra. Þá þurfi að bregðast sérstaklega við vanda þeirra ungmenna sem  hvorki eru starfandi né í námi.
Íslenskur vinnumarkaður 2020 – Áhrif heimsfaraldurs og mikilvægi atvinnuleysistrygginga
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    119 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?