• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 25. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

AÐ EIGA ÖRUGGAN SAMASTAÐ

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. október 2021
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0
Fyrr á árum vann ég hjá Kvennaathvarfinu og eftir þá reynslu er ég sannfærð um að ekkert er verra en að njóta ekki heimilisöryggis. Heimilið á að vera griðastaður og þarf að vera öruggt.
Drífa Snædal skrifar

Þetta grundvallarsjónarmið rifjaðist upp fyrir mér þegar ég heimsótti nýtt fjölbýlishús sem Samtök um kvennaathvarf hafa látið reisa til þess að auðvelda konum og börnum leiðina aftur út í lífið eftir dvöl í athvarfinu sjálfu.

Bygging þessa húss er nauðsynleg, en líka afleiðing af grimmum húsnæðismarkaði þar sem tekjulítið fólk hefur fá tækifæri til að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Það er húsnæðismarkaður sem þjónar frekar spákaupmönnum en þeirri grundvallarþörf fólks að eiga sér heimili. Réttur fjármagnseigenda og verktaka að búa til peninga á þessum markaði er metinn framar rétti fólks til að lifa við öryggi. Samkvæmt öllum helstu spám má vænta töluverðra hækkana á þessum óhefta markaði, ef ekkert verður að gert.

Það er skýr krafa verkalýðshreyfingarinnar að stjórnvöld breyti viðhorfum sínum og húsnæðismálin verði eitt af stóru málunum við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Rétturinn til öryggis verður að vera í forgrunni og stórfelld uppbygging húsnæðis án hagnaðarsjónarmiða verður að eiga sér stað.

Það er nauðsynlegt að koma húsnæðiseigendum í skjól fyrir verðbólgu og vaxtabreytingum þannig að fólk hafi möguleika á að skipuleggja framtíðina. Réttindi leigjenda verður að tryggja með nýjum lögum og binda verður endi á búsetu í atvinnuhúsnæði.

Í vikunni var kastljósinu einnig beint að ólöglegri uppsögn trúnaðarmanns hlaðmanna á Reykjavíkurflugvelli. Það mál verður rekið fyrir dómstólum enda lýtur það að kjarna verkalýðshreyfingarinnar; að fólk geti beitt sér í réttindabaráttu fyrir sig og félaga sína án þess að hefnast fyrir það með atvinnumissi.

Skömm yfirmanna hjá Icelandair er mikil að hafa ekki einungis rekið trúnaðarmann, heldur líka einu konuna sem vann þessi störf á flugvellinum. Þá stingur í augu að Samtök atvinnulífsins virðast leggja blessun sína yfir framferðið, þrátt fyrir skýra lagavernd trúnaðarmanna gagnvart órökstuddum uppsögnum.

Svona grundvallarbrot einstakra atvinnurekenda gegn réttindum starfsfólks munu lita samskipti á vinnumarkaði og komandi kjaraviðræður.

Góða helgi,

Drífa

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði?“

    Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    83 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?