• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 2. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vöruviðskipti óhagstæð um 18,8 milljarða í september

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. október 2021
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0
Fluttar voru út vörur fyrir 66,9 milljarða króna fob í september 2021 og inn fyrir 85,7 milljarða króna cif (78,7 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 18,8 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 11,6 milljarða króna í september 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í september 2021 var því 7,2 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 213,6 milljarða króna sem er 61,3 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 16,4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í september 2021 jókst um 5,9 milljarða króna, eða um 9,7%, frá september 2020, úr 61,0 milljarði króna í 66,9 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 11,7 milljarða króna, eða 46% samanborið við september 2020, og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls. Útflutningsverðmæti sjávarafurða minnkaði um fimm milljarða, eða um 17%, og munar þar mestu um lækkun á verðmæti í ferskum fiski og frystum heilum fiski.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2020 til september 2021, var 708,6 milljarðar króna og hækkaði um 99,9 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 16,4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 50% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 21% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 7,8% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 7,2 milljarða, eða 25,2%, á sama tímabili og var um 5% af heildarútflutningsverðmæti síðustu tólf mánaða.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 21,2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 85,7 milljörðum króna í september 2021 samanborið við 72,6 milljarða í september í fyrra. Verðmæti fjárfestingavara jókst um tæpa sex milljarða króna (41,4%), verðmæti eldsneytis jókst um 2,4 milljarða króna (52,2%) og verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 2,6 milljarða (11 %).

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 922,1 milljarður króna og jókst um 161,1 milljarð króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 21,2% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.

Meðaltal gengisvísitölu1 síðustu tólf mánuði var 198,6 og var gengið 2,1% veikara en á fyrra tólf mánaða tímabili þegar meðaltal gengisvísitölu var 194,5. Gengið styrktist aftur á móti um 5,9% í september (197,2) samanborið við september 2020 (209,5). Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili
Milljarðar króna á gengi hvors árs Október 2019 – september 2020 Október 2020 – september 2021 Breyting frá fyrra tímabili, %
Útflutningur alls fob 608,7 708,6 16,4
Sjávarafurðir 265,4 286,2 7,8
Landbúnaðarafurðir þ.m.t. eldisfiskur 34,5 44,3 28,3
Iðnaðarvörur 293,1 354,5 21,0
Aðrar vörur 15,7 23,6 50,0
Innflutningur alls cif 761,0 922,1 21,2
Matvörur og drykkjarvörur 80,4 88,1 9,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 225,6 272,2 20,7
Eldsneyti og smurolíur 62,2 58,8 -5,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 165,8 208,9 26,0
Flutningatæki 103,8 141,7 36,5
Neysluvörur ót.a. 122,6 152,1 24,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 0,6 0,2 -61,0
Vöruskiptajöfnuður -152,3 -213,6

1 Heimild: Seðlabanki Íslands- gengisvísitala (vísitala meðalgengis – viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Endurmenntun bílstjóra – sektir og kyrrsetning

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Úlfar: Kerfisbreytingar drifnar áfram af vók hugmyndafræði

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Mannslát í Kópavogi

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?