• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 6. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

fjármála- og efnahagsráðherra. Daði Már Kristófersson

Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur farið þess á leit við Héraðsdóm Reykjaness að dómkvaddir verði matsmenn til að meta kostnað ríkissjóðs af þeim aðgerðum sem ráðist var í til að draga úr eða koma í veg fyrir tjón í eldgosahrinu á Reykjanesskaga sem hófst í desember 2023. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að höfða mál gegn þeim aðilum sem matsbeiðnin beinist að.

Aðgerðirnar fólust einkum í gerð varnargarða við Grindavík og Svartsengi, hraunkælingu og vörnum við hitaveitulagnir. Þær heppnuðust vel en ríkissjóður lagði til verulega fjármuni vegna framkvæmdanna og er heildarkostnaðurinn orðinn rúmlega 11 milljarðar króna.

Eðlilegt þykir í ljósi þessa umfangs að skoða hvort rétt sé að þeir aðilar sem tryggt hafa hagsmuni á því svæði sem eldgosahrinan náði til eigi að bera hluta af kostnaði ríkissjóðs vegna þessara aðgerða.

Aðgerðir miðuðu meðal annars að því að gæta hagsmuna aðila á borð við HS Orku hf., HS Veitna hf., Bláa Lónsins Ísland ehf., Eldvarpa ehf., Hraunseturs ehf., Íslenskra Heilsulinda ehf. og Bláa lónsins hf. Þessir aðilar áttu og eiga enn, vegna aðgerðanna sem í var ráðist, afar verðmætar eignir og lausafé við Svartsgengi, og/eða verulega rekstrarhagsmuni tengda slíkum eignum.

Þá telur ríkissjóður sig einnig eiga kröfu á hendur Náttúruhamfaratryggingu Íslands, sem vátryggjanda stórs hluta fasteigna í Grindavík og við Svartsengi.

Dómkvöddum matsmönnum er ætlað að meta sjálfstætt þau atriði sem matsbeiðni ríkissjóðs lýtur að, þar á meðal kostnað af aðgerðum sem ráðist var í til að koma í veg fyrir eða draga úr hættunni á tjóni af völdum eldsumbrotanna á Reykjanesskaga á árunum 2023-2024.

Umræða
Share8Tweet5
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Seðlaban­kinn hætt­ir gjal­dey­r­is­kaup­um

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Kortisólskortur drepur – sterar bæla kortisól, segir Helga Ágústa innkirtlalæknir

    723 deilingar
    Share 499 Tweet 93
  • Endurmenntun bílstjóra – sektir og kyrrsetning

    83 deilingar
    Share 33 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?