• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 19. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Áskorun um desemberuppbót fyrir börn fanga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. desember 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Öllum er ljóst að fangar eru afgangsstærð í íslensku samfélagi en sama skapi bitnar sú staðreynd harkalega á saklausum börnum þeirra sem afplána dóma sína. Nú ríkir neyðarástand í fangelsum landsins og því miður er útlit fyrir að svo verði áfram út af ýmsum ástæðum og þrátt fyrir að meira fjármagn hafi fengist til að reka fangelsin í sömu mynd og nú á næsta ári.

Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar. ,,Þessi áskorun var send Dómsmálaráðherra í dag.“

Til þess að halda mannlegri reisn sinni fá fangar greidda dagpeninga og fæðisfé sem nýtast á til kaupa á mat og brýnustu nauðsynjum. Upphæð dagpeninga hefur haldist sú sama í sextán ár og nemur 3.100 krónum á viku. Og engin ástæða hefur þótt til að hækka fæðisféð heldur enda vita allir að verðlag á Íslandi hefur haldist svipað frá 2006. Ekki satt?

Nei. Sannleikurinn er sá að allar vörur hafa hækkað gríðarlega og nú er svo komið að fangar hafa hreinlega ekki efni á fæði, brýnustu hreinlætisvörum og hvað þá öðru smáræði sem þarf að kaupa, eins og jólagjafir handa börnum sínum. Öllum hækkunum hefur verið komið fyrir á herðum fanga og var byrðin þar næg fyrir. Fangar fá ekki desemberuppbót og langflestir þeirra sem afplána á Litla-Hrauni eru atvinnulausir og fá þar af leiðandi enga auka þóknun umfram dagpeninga og fæðisfé. Atvinnuleysið er ekki þeim að kenna. Það er enga vinnu að hafa. Þessir menn geta ekki glatt börn sín með smáræði um jólin.

Það ætti að vera forgangsverkefni nýs dómsmálaráðherra að fara í þetta mál og bjarga föngum um jólabónus ef ekki nema til þess að gleðja nokkur ung hjörtu sem fá þá gjöf frá fjarverandi foreldri. Við hjá Afstöðu viljum styrkja fjölskyldubönd, við viljum endurhæft fólk út úr fangelsunum. Við skorum á Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra að beita sér í þágu betrunar og taka samtal við kollega sinn, fjármálaráðherra um að gera þessi jól aðeins bærari fyrir börnin og aðstandendur fanga. Þá skorum við einnig á fangelsisyfirvöld að hækka dagpeninga, fæðisfé og þóknanir fanga frá áramótum 2023 enda löngu tímabært.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Andrew handtekinn

    Andrew handtekinn

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Af hverju í ósköpunum ættum við að rukka þig fyrir að nota peningana þína?“

    448 deilingar
    Share 179 Tweet 112
  • Viðvörun vegna veðurs

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?