Hugleiðingar veðurfræðings
Sunnan stormur í dag, meðalvindhraði á bilinu 15-28 m/s, hvassast norðvestantil og snarpar vindhviður við fjöll. Dálítil rigning eða súld, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Talsverðri rigningu er spáð sunnan- og vestanlands seinnipartinn og hlýnar ört í veðri. Líkur á asahláku á þeim slóðum, mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón.
Viðvaranir vegna vinds og asahláku hafa verið gefnar út, fólk er hvatt til að fylgjast með veðurspám og viðvörunum. Ekkert ferðaveður í dag.
Minnkandi suðvestanátt á morgun og dregur úr úrkomu, strekkingur eða allhvasst síðdegis og skúrir eða slydduél. Bætir aftur í vind fyrir norðan um kvöldið og kólnar heldur í veðri. Spá gerð: 08.12.2024 06:28. Gildir til: 09.12.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Sunnan og suðvestan 18-28 m/s, hvassast norðvestantil. Dálítil rigning eða súld framan af degi, en síðar talsverð rigning sunnan- og vestantil. Yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri, hiti víða 5 til 10 stig seinnipartinn.
Minnkandi suðvestanátt í fyrramálið og styttir víða upp, 10-18 m/s og skúrir eða slydduél seinnipartinn. Hvessir aftur fyrir norðan um kvöldið og kólnar. Hiti 0 til 5 stig.
Spá gerð: 08.12.2024 09:42. Gildir til: 10.12.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðvestan 5-13 m/s og víða bjart veður, en él á stöku stað. Víða vægt frost. Snýst í austan og suðaustan 10-18 m/s með slyddu syðst um kvöldið og hlýnar í veðri.
Á miðvikudag:
Suðaustan 13-18 m/s og talsverð rigning eða slydda, en úrkomuminna á Norðausturlandi. Hiti 2 til 8 stig.
Á fimmtudag:
Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og slydduél, en bjartviðri norðaustantil. Hiti nærri frostmarki. Snýst í norðanátt með snjókomu norðvestanlands um kvöldið og kólnar.
Á föstudag:
Norðan- og norðvestanátt með éljum fyrir norðan, en bjart með köflum sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig.
Á laugardag:
Útlit fyrir hvassa suðvestátt með snjókomu eða slyddu, rigningu syðst, en úrkomulítið eystra. Hlýnar um tíma.
Spá gerð: 08.12.2024 08:10. Gildir til: 15.12.2024 12:00.