• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Jólahugvekja: Jólin og söknuður

Jólahugvekja: Jólin og söknuður

Nú eru jólin að koma sem er erfiður árstími fyrir marga. Það eru margir búnir að missa ástvini sína.

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. desember 2024
in Fólk, Fréttir, Innlent
A A
0

Nú eru jólin að koma sem er erfiður árstími fyrir marga. Það eru margir búnir að missa ástvini sína, bæði núna nýlega og í fortíðinni.

Höfundur: Gísli Hvanndal Jakobsson 

Það skiptir ekki máli hversu langt er frá ástvina missi. Minningar og söknuður koma alltaf upp á þessum tíma og margir eiga erfitt með bæði jól og áramót. Enda eru svo margar góðar minningar og stutt í sorgina.

Þá er gott að vera meðvituð/meðvitaður um hugsanir sínar og einblína á góðu tímana með söknuðinum og heiðra minningu þeirra sem farnir eru með kærleiksríkum jólum og með þeim ástvinum sem eru ennþá hér, í stað þess að hugsa of mikið um þá sem farnir eru.

Að finna fyrir þakklæti að t.d. annað foreldri manns sé ennþá hér eða systir eða bróðir og gleðjast saman og vita það að sá sem er farin verður ávallt í hjarta manns.

Þannig hugsa ég þetta í dag en síðustu jól voru sársaukafull fyrir mig vegna þess að ég missti móðir mína rétt fyrir jólin. Ég var einn þau jól, einangraði mig frá fjölskyldu og vinum. Það voru mín viðbrögð við missinum. Ég mæli með að reyna að forðast þau viðbrögð… þannig hegðun.

En nú er ég komin á annan stað í lífinu og ég vil segja að það sem ég gerði í fyrra á jólunum var ekki gott fyrir neinn. Hvorki mig né fjölskylduna mína. Þess vegna vildi ég skrifa þennan stutta jólapistil til umhugsunar fyrir þá sem eru í þeim sporum eins og ég var í fyrra.

Við erum félagsverur og þurfum ást, öryggi og væntumþykju frá hvort öðru. Ekki einangra þig. Það gerir bara allt verra fyrir alla, ekki bara þig. Vertu með ástvinum um jólin og þá kemur batinn hægt og rólega frá missinum. Þá byrjar þú að heilast í kærleikanum með fjölskyldunni.

Það er mín upplifun að tíminn vinnur með manni og þetta verður auðveldara. Ég get lofað því fyrir þig sem þetta lest. Það er mín reynsla síðasta árið. Þetta verður betra og sorgin verður öðruvísi ef þú ert með ástvinum um hátíðarnar.

Megi almættið blessa þig og þína sem þetta lest og heila þig í sorg þinni. Og heiðraðu minningu þeirra sem farnir eru með gleðilegum jólum með þeim ástvinum sem eru ennþá með þér. Skapaðu góðar og fallegar minningar með þeim sem endast út lífið. Sá sem farin er myndi vilja það.

Gleðilega hátíð.

Gísli Hvanndal Jakobsson
Gislihvanndal@frettatiminn.is

Umræða
Share19Tweet12
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    83 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?