Kemst hjálpin á staðinn?
Mjög alvarlegt ástand er fyrirliggjandi í sjúkraflutningum á Íslandi að sögn Stjórnar LSS og fagdeild sjúkraflutningamanna. Engin endurnýjun sjúkrabifreiða hefur átt sér stað síðan árið 2015 og nú er í þrígang búið að fresta útboði nýrra bifreiða.
,,Í fyrra fól Velferðarráðuneytið Sjúkratryggingum Íslands að bjóða út með hraði 25 sjúkrabifreiðar til þess að bregðast við bráðavöntun sem upp var komin. Í júlí 2018 var svo auglýst útboð en opnun þess hefur verið frestað vegna þess að ráðuneytið hefur ekki getað tryggt fjármögnun kaupanna. Fyrst um fjóra mánuði frá september til janúar, frá 10. janúar til 13. febrúar og nú til 13. mars.
Samkvæmt upplýsingum LSS liggur enn ekki fyrir hvort Velferðarráðuneytið fái fjárheimild svo að hægt sé að standa við opnun útboðsins þann 13. mars. Á meðan deila ríkið og Rauði Krossinn um hvernig skuli haga uppgjöri sjúkrabílasjóðs sín á milli. Málið er í gíslingu og á sama tíma safnast innkoma af sjúkraflutningum og framlög frá ríkinu í sjóðinn. Þetta ástand er að mati LSS algjörlega óviðunandi.
Sjúkrabílaflotinn á landsvísu telur 84 bíla. Samkvæmt viðmiðunartölum um aldur og akstur sjúkrabifreiða þarf að endurnýja yfir helming flotans árið 2019 eða um 47 bifreiðar. Ástandið er fyrir löngu orðið alvarlegt og LSS hefur þungar áhyggjur. Vöntunin heldur áfram að aukast og ástandi flotans hrakar. Dæmum fjölgar um bilanir á þessum mikilvægu flutningstækjum og ljóst er orðið að öryggi starfsmanna og skjólstæðinga er ógnað.
LSS undirstrikar alvarleika málsins, það stefnir í algjört óefni, enda tekur um 10 mánuði frá því gengið er frá samningum á grundvelli útboðsins þar til fyrstu bifreiðar eru afgreiddar.
Ríkið ber ábyrgð á rekstri sjúkraflutninga í landinu. Þetta mál þarf að leysa án tafar.“ Segir stjórn LSS og fagdeild sjúkraflutningamanna