• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Sameining Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt, frumvarpsdrög um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.  

Einnig hafa verið lögð fram í gáttinni drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hafrannsóknastofnun.

Bætt og skilvirkari þjónusta með sameinaðri stofnun

Markmið sameiningar Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs er að einfalda þjónustu við atvinnulíf, fækka samskiptaleiðum og skýra ferla með öflugri og skilvirkari stofnun sem mun hafa starfsstöðvar víða um land. Með frumvarpinu er jafnframt lagt til að matvælaeftirlit sem nú er á vegum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga flytjist til nýrrar sameinaðrar stofnunar.

Fyrirhuguð sameining er í samræmi við niðurstöður fýsileikagreiningar sem sýndi fram á tækifæri til aukinnar samþættingar, samstarfs og styrkingar stjórnsýslu og faglegra stoða eftirlitsins. Verðlagsstofa skiptaverðs verður þannig hluti af nýrri stofnun en heldur ríku sjálfstæði í sínum kjarnaverkefnum.

Með frumvarpinu er einnig brugðist við ábendingum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að efla skilvirkni opinbers eftirlits í samræmi við EES-reglur. Gert er ráð fyrir að ný stofnun taki til starfa 1. janúar 2027.

Lagarammi um Hafrannsóknastofnun styrktur

Markmið frumvarps til breytingar á lögum um Hafrannsóknastofnun er að skýra og styrkja þann lagaramma sem Hafrannsóknastofnun starfar eftir og gera stofnuninni þar með betur kleift að sinna þeim verkefnum sem henni eru falin með lögum.

Tildrög frumvarpsins má að hluta rekja til ábendinga og gagnrýni á rekstur og stjórnsýslu stofnunarinnar sem hafa komið fram í úttekt og greiningarvinnu ráðuneytisins á stofnuninnisem og skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?