• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hlé gert á samstarfi við Rússa á vettvangi Barentsráðsins og Norðlægu víddarinnar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. mars 2022
in Erlent, Fréttir
A A
0
Aðildarríki Barentsráðsins (e. Barents Euro-Arctic Council, BEAC), að Rússlandi frátöldu, hafa birt sameiginlega yfirlýsingu þar sem innrás Rússlands í Úkraínu er harðlega fordæmd. Gert verður tímabundið hlé á samstarfi við Rússland á vettvangi ráðsins þar til annað verður ákveðið. Þá hafa Evrópusambandið, Noregur og Ísland birt sameiginlega yfirlýsingu á vettvangi samstarfsins um Norðlægu víddina (Northern Dimension) þar sem innrás Rússlands í Úkraínu er harðlega fordæmd. Ákvörðun er tekin um að meina Rússlandi þátttöku í starfsemi Norðlægu víddarinnar þar til annað verður ákveðið.

Barentsráðið var stofnað árið 1993 og er samstarfsvettvangur Norðurlandanna, Rússlands og Evrópusambandsins. Á vettvangi ráðsins er hugað að margvíslegu hagnýtu samstarfi um sameiginleg hagsmunamál á svæðinu, svo sem umhverfismál og ábyrga nýtingu auðlinda, ekki síst með hag frumbyggja að leiðarljósi.

Norðlæga víddin er samráðsvettvangur Evrópusambandsins, Íslands, Noregs og Rússlands um málefni Norðvestur-Evrópu. Innan Norðlægu víddarinnar eru fjögur meginmálefnasvið: lýðheilsa og félagsleg velferð, samgöngur og flutningar, menning og loks umhverfismál.

Í síðustu viku samþykktu utanríkisráðherrar aðildarríkja Eystrasaltsráðsins (e. Council of the Baltic Sea States, CBSS) og háttsettur fulltrúi ESB á sviði utanríkismála sameiginlega yfirlýsingu um að meina Rússlandi þátttöku í allri starfsemi ráðsins uns annað verður ákveðið. Þá hafa aðildarríki Norðurskautsráðsins, utan Rússlands, gert tímabundið hlé á þátttöku í öllum fundum ráðsins og undirstofnana þess í mótmælaskyni við innrásina í Úkraínu. Jafnframt hefur Norræna ráðherranefndin ákveðið að stöðva tafarlaust allt samstarf við Rússland og Belarús af sömu ástæðu.

Yfirlýsing aðildarríkja Barentsráðsins að Rússlandi undanskildu [PDF]
Yfirlýsing Íslands, Noregs og ESB á vettvangi Norðlægu víddarinnar [PDF]

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Alþingismanni hótað

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?