• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aldursfordómar – Ég heiti 180654 5269

Viðar Eggertsson. Varaþingmaður Samfylkingarinnar

Eldra fólk hefur ekki tíma til að bíða eftir réttlæti – Laun ráðherra hafa hækkað um rúmlega 90%

Þau sem veikast standa

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. maí 2023
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0
Kjaragliðnun er pólitísk ákvörðun. Lög um almannatryggingar tryggja lífeyristaka gegn kjaragliðnun, en þrátt fyrir það er kjaragliðnun staðreynd á Íslandi.
Viðar Eggertsson.
Varaþingmaður Samfylkingarinnar

Á hverju ári leggur fjármála- og efnhagsráðherra fram fjárlagafrumvarp. Árlega kemur þar fram hvað ráðherrann og ráðuneyti hans ætla eldra fólki til að lifa af, hversu hár ellilífeyrir eigi að vera. Þar er ár eftir ár beitt ótrúegust reiknikúnstum til að komast hjá því að framfylgja 69. grein laga um almannatryggingar, þar sem skýrt er kveðið á um að ellilífeyrir eigi aldrei að hækka minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Reiknikúnstir ráðuneytis hæstvirts ráðherrans hafa sífellt vanmetið verðlagsþróun, almenna launaþróun og vísitölu neysluverðs – og þá hefur alltaf hallað á lífeyristaka.

Kaupmáttur ellilífeyris ekki haldið í við launaþróun né vísitölu

Á síðustu átta árum hefur lífeyrir hækkað um 39%, verðbólgan hefur verið 40,3%, almenn vísitala hefur hækkað um 65% og laun ráðherra hafa hækkað um rúmlega 90%.

Samkvæmt útreikningum Landssambands eldri borgara hefur kaupmáttur ellilífeyris ekki haldið í við almenna launaþróun á síðustu árum, frá árinu 2018, hvort sem horft er til lágsmarslauna eða launavísitölu. En til þess að svo megi vera, ætti hann að vera 20-40 þúsund krónum hærri en hann er í dag. Þetta er vel tíundað í umsögn Landssambandsins um síðustu fjárlög og rökstutt skírt og afar skilmerkilega.

Nú lifum við á verðbólgutímum. Verðbólgan sleikir tveggja stafa tölu í dag. Í ár er gert er ráð fyrir að verðbólga verði 8.2% en ekki 5,6% eins og gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu.

Munar um 95.000 kr

Ranglega hefur fjármála- og efnahagsráðherra haldið því fram í mörg liðin ár að ellilífeyrir væri 300.000 kr. Ráðherra veit fullvel að ellilífeyrir náði ekki þessari tölu fyrr en í ár. Loksins á þessu ári. Í dag er ellilífeyrir 307.829 kr. fyrir skatta og skerðingar. – Það er nú öll rausnin!

Lífeyristakar hafa árum saman kallað eftir því að óskertur ellilífeyrir nái sömu upphæð og lágmarks taxtalaun á vinnumarkaði. Lágmarkstaxti Eflingar er í dag 402.235 kr. Þarna munar um 95.000 kr.! Ellilífeyristakanum í óhag. Láglaunafólk getur vart lifað af 402 þúsund – hvað þá að fátækt eldra fólk geti lifað af 307 þúsundum. Síðan á eftir að greiða tekjuskatt af þessum upphæðum – svo rauntekjurnar eru lægri.

Svo koma skerðingarnar. Við skulum tala um þær, því þær eru óhjákvæmilegar samkvæmt lögum. Enda er það svo að það eru sárafáir sem fá ellilífeyri óskertan vegna þess hve almenna frítekjumarkið er lágt. 1. janúar 2017 var sett frítekjumark á allar tekjur, sem nú gilda fyrir lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur. Frítekjumarkið var þá 25.000 kr. Það er enn, rúmum 6 árum síðar, 25.000 kr.

Þau sem veikast standa

Lágt frítekjumark kemur harðast niður á því fólki sem hefur lægstu tekjurnar. Einkum og sér í lagi konum sem unnið hafa láglaunastörf,  einhleypu fólki, og að ógleymdum þeim sem eru á hinum alræmda íslenska leigumarkaði þar sem leiguverð er í hæstu hæðum og húsnæðisöryggi lítið.

Kjaragliðnun verður að uppræta strax. Það er lágmarks krafa að ráðherra og ráðuneyti hans fari eftir 69. gr. laga um almannatryggingar og reikni rétt.

Eldra fólk hefur ekki tíma til að bíða eftir réttlæti!

Umræða
Share32Tweet20
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 120 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sviptir góðum tekjumöguleikum

    Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    120 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • Næsta lægð er væntanleg

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Sam­eign þjóðarinnar – eða stærsta til­færsla auð­linda í sögu Ís­lands?

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?