• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Samherjamálið, fiskveiðistjórnarkerfið og sérhagsmunirnir eru mjög viðkvæm mál fyrir ríkisstjórnina"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. júní 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Vilja ekki bera saman greiðslur Samherja fyrir veiðiheimildir í Namibíu og greiðslur á Íslandi

Þorgerður Katrín fordæmir vinnubrögð ríkisstjórnarflokkanna

,,Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar taldi óþarft að ljúka frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegsráðherra vegna Samherjamálsins. Að stoppa athugun kemur eitt og sér ekki á óvart þegar þessir þrír stjórnarflokkar eiga í hlut. Það sem er hins vegar alvarlegt er hvernig meirihlutinn ráðskast með hlutverk sitt með þeim hætti að þau telja það duga að henda inn einni bókun til að stoppa mál og koma í veg fyrir frekari umfjöllun.“ Sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar á Alþingi í dag. 

Með svona afgreiðslu, sem á endanum mun koma til kasta forseta þingsins, býður meirihlutinn upp á feluleik og gerir málið sjálft að stórmáli því að það er ekkert smámál að draga tennurnar úr eftirlitshlutverki Alþingis og þangað beini ég sjónum mínum. Í því felst mikil pólitísk ábyrgð. Það er ólýðræðislegt og óboðlegt.

Samherjamálið, fiskveiðistjórnarkerfið og sérhagsmunirnir eru mjög viðkvæm mál fyrir ríkisstjórnina

,,Samherjamálið, fiskveiðistjórnarkerfið og sérhagsmunirnir eru mjög viðkvæm mál fyrir ríkisstjórnina – Vilja ekki bera saman greiðslur Samherja fyrir veiðiheimildir í Namibíu og greiðslur á Íslandi“

Við erum margbúin að upplifa það af hálfu stjórnarflokkanna að ef þeir sitja ekki sjálfir á skýrslum þá eru þeir hreinlega á móti skýrslubeiðnum sem við höfum lagt fram hér á þinginu, eins og að bera saman greiðslur Samherja fyrir veiðiheimildir í Namibíu og greiðslur á Íslandi. Þar var eftir því tekið hversu eindregið Sjálfstæðisflokkurinn var á móti. Þar fyrir utan er gert lítið úr fyrirspurnum þingmanna. Menn eru lengur að svara en nokkur dæmi finnast um í þingsögunni. Og nú á að gera allt til þess að kippa eftirlitshlutverki Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu úr sambandi.

Í boði Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Hvernig verður það, þegar framvegis verða gerðar frumkvæðisathuganir, á þá meiri hluti með þessum hætti að geta komið í veg fyrir afgreiðslu mála og hindra þannig að mál fái fullnægjandi meðferð? Á þetta í alvörunni að verða fordæmi hér á hinu háa Alþingi, algerlega óháð því máli sem hér var undir?

Auðvitað vitum við að þetta er mjög viðkvæmt mál fyrir ríkisstjórnina, Samherjamálið, fiskveiðistjórnarkerfið og sérhagsmunirnir sem þarna liggja undir. En burt séð frá því eru þessi vinnubrögð óboðleg og sannarlega ekki hluti af margboðaðri eflingu Alþingis.

Og þetta er í boði Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þeirra arfleifð verður sú að þau standa í vegi fyrir öllum þeim skrefum sem minni hlutinn hefur reynt að stíga til að sinna eftirlitshlutverki sínu, sérstaklega þegar málin hafa verið viðkvæm, pólitískt viðkvæm, og við höfum því miður séð þetta áður.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    212 deilingar
    Share 85 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?