Lögreglan á Suðurnesjum var í för með TF-LÍF í gær og skoðuðu varðsvæðið úr lofti
,,Við vorum aðallega að kanna með utanvegaakstur og skoðuðum Reykjanesfólkvanginn allan en vorum þó með augun opin fyrir öllu, eins og alltaf reyndar.
Engan sáum við aka utan slóða en talsvert er þó af förum á svæðinu eftir ökutæki sem hefur verið ekið utan slóða og vega og var það ekki fallegt að sjá.
Talsvert var af göngufólki á skaganum sem naut veðursins og umhverfisins.
Við munum halda þessu eftirliti okkar áfram og biðjum ökumenn að halda sig á mektum vegum og slóðum.“ Segir lögreglan á Suðurnesjum.
Umræða