Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun vekur undrun
Aðgerðir bæjarins hafa umbylt hafnfirsku leikskólastarfi
Hafnarfjarðarbær hefur á síðustu árum umbylt hafnfirsku leikskólastarfi og starfsumhverfi þeirra. Unnið hefur verið markvisst að því að gera störf innan leikskóla bæjarins eftirsóknarverðari og starfsumhverfið meira heillandi.
Hæstu laun fyrir störf í leikskólum á landinu
Sveitarfélagið hækkaði laun ófaglærðs starfshóps umfram almenna kjarasamninga frá og með febrúar 2023. Það greiðir í dag fimm launaflokkum hærra en almennir samningar um störf á leikskólum. Auk þess greiðir sveitarfélagið fimm óunna yfirvinnutíma. Það kemur því mjög á óvart, í ljósi þess ábata sem starfsfólk leikskóla bæjarins nýtur umfram almenna kjarasamninga, að kjörstjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar standi nú fyrir atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun alls félagsfólks sem starfar á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar.
Öflugt leikskólastarf
Hafnarfjarðarbær er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur á leikskólum bæjarins. Stoltur af öflugu starfsfólki leikskólanna og af því að geta boðið almennu starfsfólki í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar hæstu laun fyrir störf í leikskólum á landinu. Ráðningar í störf innan leikskólanna hafa gengið vel undanfarin misseri. Yngstu börnin eru í dag 15 mánaða við innritun. Stjórnendur sveitarfélagsins sjá að aðgerðir sveitarfélagsins eru farnar að skila sér.
Umbreytingin á leikskólunum hefur náð til allra starfshópa innan þeirra, þar með talið ófaglærðs starfsfólks, sem starfar samkvæmt kjarasamningi Hlífar. Bærinn hefur einnig stutt starfsfólk sitt til að sækja sér menntun í faginu. Fjöldi starfsmanna hefur nýtt þann stuðning samhliða störfum til réttindanáms í faginu.