• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 23. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Appelsínugular viðvaranir um land allt nánast

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. desember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun um mest allt landið frá því í fyrramálið og fram á miðvikudag. Gul viðvörun er í gildi fyrir Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirði og Suðausturland.

https://www.vedur.is/vidvaranir

Veðurhorfur á landinu
Suðaustan 13-20 m/s með slyddu eða snjókomu, hvassast við Suðurströndina. Hægari norðaustantil fram eftir degi en hríð á Austfjörðum og Austurlandi í kvöld. Mun hægari vestanlands í kvöld en hvessir hratt í nótt, fyrst á Vestfjörðum.
Vaxandi norðaustanátt í nótt, mikil snjókoma og skafrenningur á norðanverðu landinu. Norðan 20-28 m/s á vestanverðu landinu eftir hádegi á morgun, fyrst norðvestanlands, en staðbundið 28-33 m/s í vindstrengjum við fjöll. Hægari vindur og úrkomuminna á Austfjörðum og Austurlandi. Frost 0 til 6 stig en frostlaust við suðaustur og austurströndina í dag.
Spá gerð: 09.12.2019 10:38. Gildir til: 11.12.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðan 18-28 m/s, hvassast á Suðaustur- og Austurlandi. Stórhríð og skafrenningur norðan og austanlands en úrkomulítið sunnantil. Dregur lítið eitt úr vindi og úrkomu vestantil síðdegis. Frost 0 til 6 stig.
Á fimmtudag:
Norðan 13-20 m/s og hríð um landið norðan og austanvert, en norðaustan 8-15 og skýjað en úrkomulítið sunnantil á landinu. Lægir smám saman þegar líður á daginn og dregur úr ofankomu norðantil um kvöldið. Frost 2 til 10 stig.
Á föstudag:
Norðlæg átt, 5-13 m/s en norðvestan 8-15 norðaustantil síðdegis. Snjókoma með köflum eða éljagangur norðan og austantil, einkum við ströndina en bjartviðri syðra. Frost 2 til 12 stig, kaldast í innsveitum.
Á laugardag:
Norðvestlæg átt, 5-13 en suðaustan 8-15 við suðurströndina. Slydduél eða él syðst, og stöku él við norðurströndina annars úrkomulítið. Talsvert frost.
Á sunnudag:
Norðaustlæg átt, og stöku él við ströndina en bætir í ofankomu norðvestantil um kvöldið. Áfram kalt í veðri.
Spá gerð: 09.12.2019 08:38. Gildir til: 16.12.2019 12:00.
Hugleiðingar veðurfræðings
Á Grænlandshafi er lægð að nálgast landið og úrkomusvæði hennar gengur norðaustur yfir landið í dag. Fer því fljótlega að snjóa suðvestanlands, en síðar slydda eða rigning á þeim slóðum. Hægur vindur norðaustan til fram á kvöld, en fer þá einnig að hvessa og snjóa þar. Hlýnar nokkuð í veðri í dag.
Í nótt dregur síðan til tíðinda þegar önnur kröpp lægð sunnan úr hafi kemur upp að Austfjörðum. Lægðinar tvær valda síðan í sameiningu ört vaxandi norðanátt á landinu. Kominn verður stormur eða rok og farið að snjóa norðan til í fyrramálið, en mun hægari vindar og bjartviðri syðra. Eftir hádegi herðrir enn á norðanáttinni og bætir talsvert í snjókomu nyrðra, en hvessir einnig fyrir sunnan. Vinstyrkur getur náð ofsaveðri við norðvesturströndina á morgun og jafn vel víðar, t.d. er spáð roki í efri byggðum Reykjavíkur.
Margar gular viðvarnir vegna vinds og hríðarveðurs í því gildi fyrir morgundaginn og gætu sumar þeirra hækkað í appelsínugult. Óveðrið mun valda samgöngutruflunum á Norður- og Vesturlandi og valda röskun á öllum flugferðum innan- sem utanlands. Vart þarf að taka fram að ferðalög á umræddum svæðum eru ekki æskileg og fólk er hvatt til að ganga tryggilega frá híbýlum sínum og lausamunum. Byggingaverktakar ættu að koma byggingaefni og vélum í skjól og sama gildir um vörur og vélar á athafnasvæðum og höfnum. Íbúar norðan- og vestanlands ættu einnig að búa sig undir hugsanlegar rafmagnstruflanir, sem gætu haldist þar til veðrinu slotar.
Ef að líkum lætur byrjar norðahvellurinn að ganga niður aðfaranótt miðvikudags, fyrst vestan til, en áfram herjar þó hríðarbylur á Norðustur- og Austurlandi fram á kvöldið.
Spá gerð: 09.12.2019 06:11. Gildir til: 10.12.2019 00:00.
https://www.vedur.is/vidvaranir

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Gul viðvörun vegna veðurs

    Miðbærinn í Reykjavík undir sjávarborði samkvæmt spálíkunum

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Meðallaun 758.000 kr. – Yfirmenn með 2,4 milljónir

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Við verðum að skipta um gjaldmiðil – Siðblindan fer með völdin

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hringlandaháttur í veiðistjórnun

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Karlmaður kærði synjun um launað leyfi á kvennafrídeginum

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?