• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 27. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rúmlega 3800 manns kærðir fyrir of hraðan akstur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. desember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Helstu verkefni lögreglunnar á Suðurlandi dagana 2. til 8. desember

Lögreglan á Suðurlandi

Þrír ökumenn sem lögreglan hafði afskipti af í liðinni viku eru grunaðir um að hafa ekið bifreiðum sínum undir áhrifum fíkniefna. Tveir þeirra reyndust einnig sviptir ökurétti vegna fyrri brota en sá þriðji hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Einn þessara einstaklinga kom akandi til skýrslugjafar að lögreglustöð vegna annars máls og vakti ástand hans grunsemdir lögreglumanna um að hann væri ekki á ástandi til aksturs. Þrír aðrir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur bifreiða sinna. Einn þeirra ók bifreið sinni ítrekað útaf vegi og inná aftur á Suðurlandsvegi í Rangárvallasýslu án þess þó að valda slysi. Vegfarendur tilkynntu um aksturslag hans.
Einn var kærður fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur bifreiðar sinnar. Hann reyndist vera að aka bifreið sinni sviptur ökurétti vegna eldra brots.
13 eru kærðir fyrir að aka of hratt í umdæminu. Af þeim voru 12 í Skaftafellssýslunum og sá sem hraðast ók mældist á 134 km/klst hraða. 10 þessir ökumanna eru erlendir ferðamenn en hinir íslenskir. Rúmlega 3800 manns hafa nú verið kærðir fyrir að aka of hratt í umdæminu á yfirstandandi ári.
13 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku. Í tveimur þeirra urðu meiðsl á fólki, Annarsvegar þann 4 desember en þá bilaði stýrisbúnaður bifreiðar á vesturleið í Hveradalabrekku með þeim afleiðingum að hún lenti út í vegriði. Ökumaður annarrar bifreiðar stöðvaði bifreið sína fyrir framan þessa bifreið og fór til aðstoðar við ökumann hennar. Ökumaður þriðju bifreiðarinnar sem þarna kemur við sögu dró úr hraða sinnar bifreiðar þegar hann hugðist aka framhjá en þá vildi ekki betur til en svo að fjórða ökutækið, vörubifreið með vagni, náði ekki að draga nægjanlega úr ferð og lenti aftan á henni og kastaði á bifreið þess sem í upphafi hugðist aðstoða þann ólánssama í vegriðinu. Ökumaður bifreiðarinnar sem vörubifreiðin lenti á var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík. Aðrir sluppu ómeiddir, þ.m.t. fjöldi hrossa sem voru á vagni vörubifreiðarinnar. Snjókoma var á vettvangi og snjóþekja með tilheyrandi hálku á veginum.
Föstudaginn 6. desember varð barn undir afturhjóli pallbifreiðar sem ekið var afturábak á bifreiðastæði við sveitabæ í Árnessýslu. Það var flutt á sjúkrahús í Reykjavík en áverkar þess reyndust minniháttar og barnið sent heim að skoðun lokinni.
Skráningarnúmer fjögurra bifreða voru fjarlægð þar sem þær reyndust ótryggðar í umferðinni.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir  þremur gróðurhúsum

    Lýst eftir þremur gróðurhúsum

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Um þrettán milljarða hagnaður hjá sjávarútvegsfyrirtæki

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Ríkið útvegi 50.000 kaupleiguíbúðir – leiga 100 til 300 þúsund

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Rif Restaurant er frábært veitingahús í hjarta Hafnarfjarðar

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Fékk Nóbelsverðlaun fyrir að benda á að kvótakerfið er rugl

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?