UPPFÆRT: Athugasemdir jarðvísindamanns
kl. 13:10 varð jarðskjálfti af stærð 3,9 um 4,5 km SSA af Hveragerði. Tilkynningar hafa borist um að hann hafi fundist í Hveragerði, Selfossi og á höfuðborgarsvæðinu. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.
Snarpur jarðskjálfti rétt við Hveragerði
Nú rétt í þessu varð skjálfti 4 kílómetra suð-suðaustur af Hveragerði. Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar er fyrsta mat af skjálftanum að hann sé af stærð 3,9. Tilkynningar hafa borist um að hann hafi fundist í Hveragerði, Selfossi og á höfuðborgarsvæðinu. Rúv greindi fyrst frá og þar segir:
,,Að sögn íbúa í Hveragerði var skjálftinn stuttur en mjög snarpur. Gyða Björg Elíasdóttir segir í samtali við fréttastofu að myndir hafi skekkst á veggjum hjá henni. Ekkert hafi þó skemmst enda skápar og hillur festar vel við veggi.
Samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingi Veðurstofunnar varð skjálftinn á sprungu milli Hveragerðis og Selfoss. Eftirskjálftarnir sem hafa mælst eru mun minni en fyrsti skjálftinn.
Sérfræðingur Veðurstofunnar segir ómögulegt að segja til um það hvort reikna megi með áframhaldandi eftirskjálftum eða hvort skjálftavirknin deyi fljótlega út.“